Yfirlit
Námskeiðið er opið öllum. Það er þó hannað með þau í huga sem hafa einhvern fjármálabakgrunn úr námi og/eða starfi. Námskeiðið byggir á efni sem kennt í meistaranámi í fjármálum við Háskóla Íslands og Copenhagen Business School. Prófnefnd verðbréfaréttinda hefur staðfest að námskeiðið uppfyllir kröfur um 4 klst. í endurmenntun til að viðhalda verðbréfaréttindum. Námskeiðið er rafrænt og eftir að þú skráir þig færðu sent námsefnið, sem er í formi veffyrirlestra og hagnýts verkefnis. Námsefnið er því ekki bundið við stað eða stund, þ.e. þú getur farið í gegnum efnið þegar þér hentar. Eftir skráningu færðu senda greiðslukvittun og staðfestingu sem þú getur nýtt þér til að skrá endurmenntun þína á island.is, sbr. leiðbeiningar á vefsíðu prófnefndarinnar (sjá hér).
Efnisskrá
Námskeiðið fjallar um verðlagningu skuldabréfa, áhættustýringu skuldabréfasafna og mat á vaxtarófi. Markmiðið er að beita kenningum fjármálafræðinnar á raunhæf úrlausnarefni með aðstoð Excel og Visual Basic. Notast verður við raungögn við lausn hagnýts verkefnis.
Nánar tiltekið þá leiða veffyrirlestrarnir þátttakendur í gegnum efnið og útskýra hvernig má hagnýta fjármálafræðina til að greina og leysa raunveruleg úrlausnarefni - og samhliða veffyrirlestrum geta þátttakendur spreytt sig á að vinna með raungögn. Notast verðu við raungögn fyrir íslensk ríkisskuldabréf, þ.e. þau verðlögð og eignasafni með slíkum bréfum áhættustýrt þannig að verðmæti þess verður ónæmt gagnvart vaxtabreytingum. Loks er kynnt aðferðafræði við að meta framtíðarvexti, þ.e. vaxtarófið. Í lok námskeiðsins ættu þátttakendur þannig að kunna skil á þeirri þekkingu og aðferðafræði sem nýtist til að verðleggja skuldabréf, áhættustýra verðbréfasafni og meta vaxtaróf. Þannig er markmiðið að kynna hagnýta aðferðafræði við greiningu á fjármálagögnum. Engrar sérstakrar forkunnáttu er þörf í þessu tiltekna efni, ekki heldur hvað varðar Excel og Visual Basic.
Nánari efnisyfirlit má sjá neðar á þessari síðu.
Verð
Verðið fyrir námskeiðið er einungis 19.900 kr. Athugið að ef vinnuveitandi tekur ekki þátt í kostnaði þá niðurgreiða stéttarfélög almennt hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn. Það á þó ekki alltaf við og því er verðinu stillt í hóf til að hafa námskeiðið aðgengilegt sem flestum. Eftir samkomulagi er einnig hægt að halda námskeið í starfsstöðvum fyrirtækja og stofnana.
Kennari námskeiðsins hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir framúrskarandi kennslu við bæði Columbia University og Copenhagen Business School (þ.á.m. valinn besti kennari skólans). Hann hefur einnig hlotið stöðuna Senior Fellow hjá kennslusamtökum í Bretlandi sem veita alþjóðlegar viðurkenningar fyrir afburða kennslu á háskólastigi.
Kennari
Úlf Níelsson hefur alþjóðlega reynslu af fjármálum og kennslu. Hann er dósent í fjármálum við Copenhagen Business School og prófessor í fjármálum við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Hann kennir í senn grunnáms-, meistara- og MBA-námskeið í fjármálum.
Úlf lauk doktorsprófi í hagfræði við Columbiaháskólann í New York og útskrifaðist þar áður með M.Phil. gráðu í fjármálahagfræði frá Cambridgeháskóla í Englandi. Rannsóknir Úlfs snúa að fjármálamörkuðum og samspili þeirra við fjármál fyrirtækja og heimila. Úlf hefur hlotið ýmis verðlaun fyrir rannsóknir sýnar, m.a. hin evrópsku De la Vega verðlaun, hin dönsku Sapere Aude verðlaun og Tietgen gull viðurkenninguna. Hann vinnur jafnframt reglulega sem ráðgjafi í atvinnulífinu og í dómskerfinu.
Hægt er að hafa samband með tölvupósti ef einhverjar spurningar vakna: un.fi@cbs.dk.
Umsagnir
Námskeiðið byggir á efni sem kennt er í meistaranámi í fjármálum og hér fylgja dæmi um umsagnir nemenda:
"Mjög vel skipulagt og hagnýtt námskeið."
"...ég verð að segja að þetta er mjög vandað og hagnýtt námskeið. Verkefnin eru mjög hagnýt og áhugaverð og einnig skemmtileg"
"Takk fyrir áhugavert námskeið ... mjög gagnlegt efni."
"Mjög vel til fundið að hafa "applied" námskeið sem nær að blanda saman fræðum og praktík; fann fyrir mitt leyti fullt af atriðum sem var gaman að takast á við þó excel hafi yfirleitt ekki verið mjög nálægt mér í minni vinnu."
Nánara efnisyfirlit
Almennt: Notast verður við íslensk ríkisskuldabréf, þ.e. þau verðlögð og eignasafni með slíkum bréfum áhættustýrt m.t.t. vaxtabreytinga. Einnig verður farið yfir aðferðafræði við mat á framtíðarvöxtum, þ.e. vaxtarófi.
Fyrsti hluti: Verðlagning skuldabréfa og áhættustýring (hedging)
o Verð og ávöxtun
o Hagnýt tæki í Excel (t.a.m. Solver)
o Meðaltími (duration) og áhættustýring
o Kúpni (convexity) og áhættustýring
Annar hluti: Vaxtakúrfan
o Hagnýt tæki í Excel (Visual Basic)
o Hliðrun vaxtakúrfunnuar og áhættustýring
Þriðji hluti: Mat á vaxtarófi
o Raunverð borin saman við reiknað verð
o Ýmis líkön fyrir vaxtaróf (t.d. Nelson-Siegel)
o Aðferðafræðin í Excel