- Kristján Ernir Björgvinsson
„Það gefur mér svo mikla jákvæðni, ást, von og hamingju.
Þetta er ferlið og hugmyndin kom strax til mín eftir sónarmyndartöku.“
- Sigurður Ingi Sigmarsson
„Ég ákváð að gera þessi málverk vegna þess að mér finnst alltaf gaman að gera tré og ég elska allt sem er litríkt svo ákvað ég að gera svona eitt dautt tré svo tré sem er á lífi en lítur ekki mjög vel út og svo tré sem er mjög litríkt og fallegt svo þetta þýðir að þú getur vaxið og orðið glöð og ánægð eftir að hafa misst gleðina í smá en þetta getur líka þýtt að hunsa neikvæðnina og halda áfram.“
- Hrafnhildur Helgudóttir
„Staður þar sem mér líður vel.“
- Dominika Plancher
„Bob Ross er ein af jákvæðustu fyrirmyndum sem ég veit um og að horfa á kennslumyndband hans að sýna tæknina fyrir þetta verk veitti jákvæða orku og öryggi. Og síðast en ekki sítt þá er það eitthvað við náttúruna og aðallega vötn og tré í fjallgarði sem minnir mig á fegurð heimsins.“
- Einar Ingvaldsson
Krukka handgerð af nemandanum með jákvæðum miðum:
„Búinn að klára jákvæðnikrukkuna og gera svolítið að miðum til að setja í hana. Allir miðarnir sem ég hef gert eru sniðnir að mestu til að vera mér stuðningur til betra lífs. Til að vera alveg hreinskilinn þá hefur þessi áfangi verið svolítið uppbyggjandi fyrir bæði sál og líkama.“
Þetta verk er einnig til sýnis á listasýningu nemenda í MTR.
- Stefán Gunnar Benjamínsson