„Verkið mitt er eiginlega úrklippuverk þar sem ég klippti út blaðsíður úr Kvennablaðinu og setti það sem bakgrunn. Ofan á blaðsíðunum er mynd sem á að líkjast Bríeti Bjarnhéðinsdóttur :) . Hún var einn af helstu íslensku baráttukonum sem barðist fyrir réttindum kvenna. Hún var líka útgefandi og ritstjóri Kvennablaðsins.
Í verkinu mínu þá setti ég inn lykilorð í stórum stöfum. Það eru orðin jafnrétti, kvenréttindi, mannréttindi, kvenfrelsi, frelsi og sjálfstæði. Ég valdi þessi orð vegna þess að þau tengjast því sem Bríet var að berjast fyrir og líka því sem við erum búin að vera að fjalla um í áfanganum. Þetta tengist áfanganum því Bríet Bjarnhéðinsdóttir er baráttukona sem hefur haft áhrif á sögu kvenna.
Með verkið mitt þá vildi ég líka sýna hvernig gömul blöð og saga geta fengið nýtt líf í listaverki. Titillinn Rödd Kvennablaðsins á að tákna að rödd kvenna hverfur ekki. Hún mun alltaf halda áfram að lifa í gegnum sögu, í því sem við gerum í dag og því sem við munum halda áfram að gera í framtíðinni.
- Hedí Sólbjört Valdimarsdóttir
Verk sem sýnir áhrif samfélagsmiðla og annars samfélagslegs þrýstings um ákveðna útlitsstaðla. Stúlkan er falleg en sér sig ljóta í speglinum.
- Páll Eyþórsson
„Verkefnið mitt fjallar um misrétti kvenna og takmarkað frelsi þeirra í gegnum söguna. Ég vildi sýna hvernig konur hafa oft ekki haft sama rétt og karlar til að tjá sig, taka ákvarðanir eða móta eigið líf. Í gegnum tíðina hafa konur þurft að berjast fyrir grundvallarréttindum eins og menntun, atvinnu og tjáningarfrelsi og sú barátta er enn til staðar víða í heiminum í dag.“
- Júlía Ósland Guðmundsdóttir