Lokaverkefni nemenda í þremur félags- og hugvísindagreinum við MTR, vorönn 2026
Hér má finna nokkur af skapandi lokaverkefnum nemenda í eftirfarandi áföngum:
Inngangur að félagsvísindum (INNF1IF05)
Jákvæð sálfræði (SÁLF3JS05)
Saga, klárar konur (SAGA2KK05)
Nemendur fengu nokkuð frjálsar hendur með lokaverkefnin þar sem kynningar og ritgerðir voru bannaðar og einkunnarorð skólans voru höfð að leiðarljósi
→ Einkunnarorðin eru sköpun, áræði og frumkvæði.
Stór hluti af matskvarða fyrir verkefnin var skapandi útfærsla út frá þessum ofangreindu einkunnarorðum, auk þess sem innihald, tenging við fræðigreinina og metnaðarfull vinna var metin.