Osmo leikir
Það má finna upplýsingar um Osmo leikina á Osmo síðunni undir Games.
Standur fyrir iPad (nýr)
Standur fyrir iPad (eldri)
Standur fyrir iPhone
PDF skjöl sem sýna innihald kassanna
Gott að hafa við höndina þegar nemendur raða í kassana því það vill ævinlega eitthvað færast á milli.
Hver kannast ekki við "Ég á ekkert A." eða "Ég hef enga fimmu."?
coding awbie
Nemendur kynnast forritun, efla rökhugsun og læra að leysa þrautir. Góð þjálfun fyrir stærðfræðinám.
coding duo
Awbie og Mo halda af stað í margvísleg ævintýri í leit að gæludýrum vísindamanns.
Til að spila Coding Duo þarftu sett af Coding Awbie og Coding Jam.
coding jam
Nemendur semja tónlist með því að raða kubbunum saman.
Detective agengy
Nemendur ferðast til 6 mismunandi borga, skoða hundruð vísbendinga með stækkunargleri og læra um lönd og kennileiti.
hot wheels mindracers
Hver hefur ekki gaman af góðum kappakstri?
masterpiece
Hér þjálfa nemendur teiknifærni og fínhreyfingar.
Hægt er að velja myndir úr myndasafni sem fylgir forritinu, leita á netinu, sækja í albúm tækis eða taka myndir sjálfur.
Það er tilvalið að leyfa nemendum að teikna á hvítt blað og taka með sér heim. Einnig er hægt að nota plöstuð blöð og glærupenna sem þurrka má út.
Þegar teikningu er lokið geta nemendur vistað myndina, gefið henni heiti og skoðað myndband þar sem ferlið er sýnt.
Monster
Sköpun er hér alls ráðandi. Mo elskar töfra, að dansa og skapa með öðrum. Mo talar ensku og biður nemendur að teikna hitt og þetta. Mo sækir myndirnar og þær birtast á skjánum þar sem hann leikur sér með þær.
newton
Eðlisfræði og skapandi lausnir. Nemendur reyna með ýmsu móti (teikningu á plastað blað, kubbum eða höndum) að koma kúlum á ákveðinn stað til að kveikja ljós á tölustöfum.
Numbers
Nemendur telja, leggja saman, bæta við, draga frá og margfalda.
Pizza co.
Hér reka nemendur sinn eigin pizzastað, taka við pöntunum, taka við greiðslu og gefa til baka. Ef reksturinn gengur vel eru ýmsir möguleikar í boði.
Nemendur vinna með samlagningu, frádrátt og brot. Að auki þurfa þeir að lesa í svipbrigði kaupandans til að sjá hvernig þeir standa sig í afgreiðslunni.
Super studio
Disney: Mickey Mouse & Friends
Disney: Princess
Disney - Pixar: The Incredibles 2
Nemendur teikna og taka þátt í að skapa uppáhalds teiknimyndirnar.
tangram
Nemendur raða formum og búa til þær myndir sem eru á skjánum. Þeir þjálfa rökhugsun, samhæfingu og rýmisgreind.
words
Nemendur vinna með orðaforða á íslensku, ensku eða dönsku allt eftir verkefnum sem kennarar geta útbúið. Nemendur vinna einir, í pörum eða keppa við Osmo persónur.