Hvernig getum við leyst eyðileggingu votlendis á Íslandi?
Votlendi eru mjög mikilvæg fyrir náttúruna og loftslagið, því þau geyma koltvíoxíð í jarðvegi, ver fugla og önnur dýr. Á Íslandi hefur mikið votlendi verið þurrkað og framræst en við getum tekið skref í rétta átt til þess að laga þetta
Endurheimt votlendi:
Til að stoppa losun koltvíoxíðs (CO₂) úr framræstu votlendi getum við endurheimt votlendi, sem þýðir að við látum mýrina verða blauta aftur. Við lokum þá skurðunum eða búum til tjarnir svo vatnið fari aftur út á mýrina. Þegar hún verður blaut hættir hún að losa CO₂ og getur jafnvel byrjað að geyma það aftur inni í sér. Það er mjög gott fyrir náttúruna og loftslagið. Í raun getur endurheimt á nokkrum hekturum komið í veg fyrir mengun sem jafngildir mörg þúsund bílum!
Verndun votlendis:
Það er mikilvægt að óspillt votlendi fái að vera áfram óhreyft. Óspillt votlendi heldur áfram að geyma koltvíoxið, ver fugla og plöntur.
Skynsamleg nýting:
Ef nauðsynlegt er að nýra votlendi ætti það að vera gert þannig að það skaði vistkerfið sem minnst, t.d. með takmarkaðri mótekju eða beit. Þá má samræma lífsafkomu fólks við náttúruna án þess að eyðileggja mýrar.
Fræðsla og stuðningur:
Fólk, sveitarfélög og fyrirtæki þurfa að skilja mikilvægi votlendis. Þegar allir skilja hversu mikilvægt votlendi er, eru meiri líkur á að styðja endurheimt og verndun þess.
Með þessum aðgerðum getum við bæði stöðvað eyðileggingu votlendis, verndað dýralíf og hálfað áhrifin á loftslagið, þannig að Ísland verði grænna og sjálfbærara fyrir komandi kynslóðir.
Við viljum einnig benda á að Sunna Björk Ragnarsdóttir, sem við fengum að taka viðtal við, mun taka þátt í verkefni næsta sumar. Verkefnið snýst um endurheimtingu votlendis, sem er stórt skref í rétta átt þegar kemur að því að stöðva losun koltvíoxíðs og styðja við fugla og plöntur. Þetta sýnir að við stefnum að því að gera raunverulegan mun fyrir náttúruna og loftslagið og með þátttöku Sunnu og annarra sérfræðinga er verkefnið vel undirbúið til að ná markmiðum sínum þegar framkvæmd hefst (https://island.is/s/land-og-skogur/frett/vottun-votlendisverkefna-i-augsyn).
26. desember 2025