Heimsmarkmið
Sameinuðu þjóðanna
Sameinuðu þjóðanna
Votlendi gegnir mikilvægu hlutverki í náttúrunni en hefur víða verið eyðilagt af mannavöldum. Eyðilegging votlendis hefur áhrif á umhverfið á marga vegu og tengist meðal annars nokkrum heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Líf á landi
Grein 15 tengist beint eyðileggingu votlendis því votlendi er mjög mikilvægur hluti af náttúrunni á Íslandi. Í votlendinu lifa einnig margar plöntur og dýr sem eiga oft hvergi annars staðar heimili. Þegar votlendi er þurrkað upp eða byggt yfir það tapast þessi búsvæði og líffræðilegur fjölbreytileiki minnkar. Þetta getur valdið því að sumar tegundir deyja jafnvel út. Votlendi hjálpar líka til við að halda jafnvægi í náttúrunni, til dæmis með því að hreinsa vatn og halda jarðvegi stöðugum. Þess vegna finnst okkur grein 15 ,,Líf á landi" passa mest við þegar talað er um eyðileggingu votlendis.
4. janúar 2026
Aðgerðir í loftslagsmálum
Eyðilegging votlendis hefur líka mikil áhrif á loftslagið og tengist því heimsmarkmiði 13. Votlendi geymir mikið magn af kolefni í jarðvegi sínum. Þegar votlendi er raskað losnar þetta kolefni út í andrúmsloftið og eykur gróðurhúsaáhrif. Þetta gerir loftslagsbreytingar verri. Með því að vernda votlendi er hægt að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og hjálpa í baráttunni gegn hlýnun jarðar. Þess vegna er vernd votlendis mikilvæg loftslagsaðgerð.
4. janúar 2026
Hreint vatn og hreinlætisaðstaða
Grein 6 tengist votlendi því votlendi gegnir stóru hlutverki í vatnshringrásinni. Votlendi virkar eins og náttúruleg sía sem hreinsar vatn áður en það fer í ár, vötn eða neysluvatn. Þegar votlendi er eyðilagt verður vatnið oft skítugra og mengun berst auðveldara áfram. Þetta getur haft slæm áhrif á bæði fólk og dýr. Þess vegna hjálpar vernd votlendis til við að tryggja hreint vatn til framtíðar.
4. janúar 2026
Af þessu má sjá að eyðilegging votlendis tengist fleiri en einu heimsmarkmiði. Þetta sýnir hversu mikilvægt er að vernda votlendi til að draga úr neikvæðum áhrifum á náttúruna.