Úrslit í XCO bikarmóti Breiðabliks
XCO fjallahjólreiðar
Bikarmót Breiðabliks í ólympískum fjallahjólreiðum verður haldið í Guðmundarlundi í Kópavogi sunnudaginn 29. ágúst 2021.
Um er að ræða braut sem liggur meðal annars um skógræktarsvæði skógræktar Kópavogs og er brautin sett upp í samráði og samvinnu við skógræktina. Í aðdraganda mótsins eru hjólarar beðnir um að fara varlega þegar þeir fara um skóginn í Guðmundarlundi þar sem hún liggur í gegnum frisbígolfvöll. Vinsamlegast takið því tillit til annarra sem eiga þar leið um. Þessum hluta brautarinnar verður síðan lokað á sjálfum keppnisdegi.
Eins er keppendum bent á að leið um skóginn gæti tekið minniháttar breytingum á næstu dögum til að tryggt verði að reglum HRÍ um tímamörk verði fylgt.
Hjalti G. Hjartarson, 692-8114, hjalti@hri.is
Björgvin Jónsson, 698-2011, bjorgvin@hri.is
Skráningargjald er 4.000 kr. Hækkar í 7.000 kr. kl. 12:00, fimmtudaginn 26. ágúst 2021. Skráningu lýkur kl. 12:00, föstudaginn 27. ágúst 2021.
Skráningargjald er 3.000 kr. Hækkar í 5.000 kr. kl. 12:00, fimmtudaginn 26. ágúst 2021. Skráningu lýkur kl. 12:00, föstudaginn 27. ágúst 2021.
Anna Kristín Sigursteinsdóttir, 690-8833, annakristinsig@gmail.com
Andri Már Helgason, 859-3215, andrimar@andrimar.com
Hákon Örn Hákonarson, 864-0875, hakonarson@gmail.com
Halldór Valgeirsson, 896-7164, halldor.valgeirsson@gmail.com
Elvar Örn Reynisson, 699-7412, elvarorn76@gmail.com
Tilkynningar og aðrar upplýsingar um mótið verða settar inn á viðburðarsíðu mótsins á Facebook.
Keppendum er því bent á að mikilvægt er að merkja sig sem "Going" í þann viðburð þannig að þeir séu öryggir um að fá tilkynningar frá mótanefnd.
Skráning í mótið fer fram í gegnum skráningarkerfi HRÍ.
Boðið verður upp á brautarskoðun fyrir mótsdag og er gert ráð fyrir að þátttakendur hittist við upphafspunkt brautarinnar fyrir framan Guðmundarlund.
Brautarskoðun verður á eftirfarandi dagsetningum:
Mánudagurinn, 23. ágúst kl. 19:00 - Viðburður á Facebook
Miðvikudagurinn, 25. ágúst kl. 19:00 - Viðburður á Facebook
Nánari upplýsingar má einnig sjá á viðburðarsíðu keppninnar á Facebook.
Ræsing U11
10:00
Ræsing U13, U15, U17 og Junior
10:10
Ræsing U11
10:02
Ræsing U13, U15, U17 og Junior
10:12
Ræsing Elite, Masters og B
12:00
Ræsing Elite, Masters og B
12:02
Keppnisnúmer skal festa á stýri með þar til gerðum plastbenslum.
Tímaflögu skal festa á gaffal, þeim megin sem bremsudiskur er ekki, með þar til gerðum plastbenslum
Keppendur án tímaflögu eða rangt festa fá ekki tíma.
Keppnisgögn verða afhent kl. 09:00-09:45 og 10:30-11:40 á mótsdag í húsi Skógræktarfélags Kópavogs í Guðmundarlundi.
Takmörkuð bílastæði eru í boði við Guðmundarlund þannig að við hvetjum sem flesta til að leggja við Kórinn þar sem næg bílastæði eru.
Ein tímatökuflaga á gaffal.
Eitt keppnisnúmer til að festa á stýri
5 plastbensl til að festa keppnisnúmer og tímatökuflögu.
Um keppnina gilda reglur HRÍ.
Keppendur eru hvattir til að kynna sér reglur fyrir keppni til að koma í veg fyrir misskilning eða atvik sem geta leitt til brottvikningu úr keppninni.
Sjá nánar á vef HRÍ: Keppnisreglur HRÍ 2021 - V3 (hri.is)
Braut fyrir alla flokka nema U11 má finna hér á Strava: 4.4 km MTB Cycling Route on Strava
Braut fyrir U11 má finna hér á Strava: 1.4 km MTB Cycling Route on Strava
Í gegnum skóginn í Guðmundarlundi getur verið að einhver breyting verði á leiðinni fyrir mótsdag.
Vitað er til þess að hestafólk leiti á stíginn að sunnan- og austanverðu. Vinsamlegast farið því að öllu með gát ef brautin er prófuð í aðdraganda mótsins. Það er í vinnslu að fá Kópavogsbæ til að loka þessum hluta eða amk fá bæinn til að setja upp aðvörunarskilti sem takmarkar umferð hestafólks.
Bílastæði eru af skornum skammti við Guðmundarlund. Við mælum því með því að keppendur og gestir leggji við Kórinn.
Að ósk Hestamannafélagsins Spretts biðjum við keppendur og aðra sem eiga erindi upp í Guðmundarlund á keppnisdag að keyra um Þingmannaleið og Heimsenda í átt að Guðmundarlundi til að takmarka umferð um svæði hestamannafélagsins.
Í brautinni verður boðið upp á þjónustusvæði við hús Skógræktar Kópvogs þar sem hægt er að geyma næringu og gera við hjól ef þess gerist þörf á meðan keppni stendur.
Vekjum einnig athygli á því að aðstoðarfólk keppenda þarf að vera merkt á áberandi hátt skv. reglum HRÍ.
Ef nýta á þjónustusvæðið mælum við sterklega með því að keppendur lesi vel kafla 5.2 í reglum HRÍ um XCO og XCM fjallahjólreiðar til að koma í veg fyrir óþarfa brottvísun vegna brota á þeim reglum.
Um sóttvarnarmál gilda reglur sem yfirvöld setja hverju sinni ásamt þeim leiðbeiningum sem Hjólreiðasamband Íslands setur.
Núverandi reglur gilda frá og með 25. júlí og þar til annað verður tilkynnt.
Ef slys ber að höndum skal hringja í 112, svo láta keppnistjóra vita í síma. Sjá tengiliðaupplýsingar hér að ofan.
Ef um önnur atvik er að ræða eða keppendum vantar aðstoð skal hringja beint í keppnisstjóra.