Fimmtudaginn 5. október 1944 kl. 4 e.h. var haldinn fundur í Samkomuhúsi Vestmannaeyja þar sem voru mættir Georg Gíslason, Ágúst Matthíasson, Helgi Benediktsson, Þorsteinn Johnson, Brynjólfur Sigfússon, Axel Halldórsson, Jóhannes Brynjólfsson, Magnús Guðbjartsson, Haraídur Eiríksson, Ragnar Stefánsson, Björn Guðmundsson og Karl Kristmannsson. Tilgangur fundarins var aðeins einn, að stofna félag kaupmanna og verslunarfyrirtækja í Vestmannaeyjum og var því valið nafnið Félag kaupsýslumanna í Vestmannaeyjum (FKV). Næsta skref var að undirbúa gerð laga fyrir félagió og undirbúa viðræður um kaup og kjör vió verslunarmenn og var samþykkt að kjósa fimm manna samninganefnd. Á fundi í félaginu 14. nóvember sama ár voru lög félagsins samþykkt og fyrsta stjóm kosin og hana skipuðu Georg Gíslason formaður, meðstjórnendur Helgi Benediktsson qg Axel Halldórsson og varamenn Ágúst Matthíasson og Sigurjón Högnason. Endurskoðendur voru Björn Guðmundsson og Árni Sigurðsson. Þessar upplýsingar er að finna í fyrstu fundargerð Félags kaupsýslumanna í Vestmannaeyja sem varð 50 ára samkvæmt þessu þann 5. október sl.