Athugasemdir eru færðar í Innu fjórum sinnum á önn, tvisvar fyrir miðannarmat og tvisvar eftir. Þetta er gert fyrir hvern áfanga. Þar kemur fram hvernig nemandi stendur í náminu, yfirleitt er sett inn hve mörgum verkefnum hefur verið skilað, stundum skrifleg umsögn og stundum einkunn. Ef ástæða þykir hefur umsjónarkennari eða námsráðgjafi samband við nemanda í framhaldinu.
Svona finnurðu athugasemdirnar þínar í Innu.
Á skóladagatalinu (linkur á það nýjasta er á vef MTR, mtr.is) sjást hvenær athugasemdir eru gerðar.