Kynning á starfsemi Alcoa Fjarðaáls ásamt því sem gestir geta skoðað ýmis tól og tæki sem notuð eru í starfsemi fyrirtækisins.
Vilt þú kynna þér tækifærin sem liggja í býflugnaræktun? Það er ýmislegt sem hægt er að framleiða úr býafurðum. Kíktu við.
Atlas Primer er íslenskt EdTech fyrirtæki sem þróar snjallforrit sem styður við sjálfstætt nám með gervigreind. Atlas Primer var m.a. tilnefnt sem eitt af fremstu menntatæknifyrirtækjum í heimi árið 2024 af bandaríska fyrirtækinu TIME.
Samtalsþjálfun með grevigreind þar sem hægt verður að æfa og ná tökum á hvaða samtali sem er.
RU Racing er nemendateymi við Háskólann í Reykjavík sem hannar og smíðar keppnisformúlubíla frá grunni. Hópurinn stundar nám við hinar ýmsu greinar en einna helst verkfræði.
Félagskonur í félagi fagkvenna verða á svæðinu. Tilgangur félagsins er að hvetja konur til að sækja nám og störf í því sem telst vera karllægar iðngreinar og búa til öflugt stuðningsnet. Kíktu við.
Fjarðabyggð mun kynna sveitarfélagið og starfsemi þess. Mannauðssvið Fjarðabyggðar verður á staðnum ásamt slökkviliði Fjarðabyggðar.
Securitas verður með kynningu á heimavörn frá Securitas fyrir gesti og gangandi.
Nám í heimabyggð – Háskólinn á Akureyri býður upp á sveigjanlegt nám í tölvunarfræði sem þýðir að þú þarft ekki að flytja til að stunda háskólanámið.
HSA býður upp á blóðþrýstingsmælingar og blóðsykurmælingar. Kíktu við á HSA básinn og settu heilsuna í forgang!
Steina Gunnarsdóttir doktorsnemi við matvæla- og næringafræðideild við HÍ fjallar um gjörunnin matvæli en hún hefur m.a. verið að rannsaka neyslu landsmanna á gjörunnum matvælum þar sem m.a. mátti sjá að tæplega helmingur allrar orkuinntöku fullorðinna Íslendinga kom frá gjörunnum matvælum sem Steina ætlar að kynna okkur betur fyrir.
Hjá Matís er unnið að fjölbreyttum verkefnum í matvælaiðnaði þar sem áhersla er lögð á nýsköpun og verðmætaaukningu. Kíktu við.
Ný íslensk lausn sem heldur utan um Pokemon spil og sýnir hversu sjaldgæf og verðmæt þau eru.
Kíkið á Alexander 10 ára gamlan dreng sem er að prufa sig áfram með gervigreindina.
Sævar Helgi Bragason, eða Stjörnu Sævar mun vera með okkur í ár, á árinu sem Sólmyrkvi mun eiga sér stað nánar tiltekið þann 12. ágúst 2026. Lærðu meira um sólmyrkvann og kíktu við í spjall til Sævars.
Veðurstofa Íslands....
Kíkið á Tölvuhvíslarann, skoðið tölvur og græjur og fræðist um bilanagreiningar og viðgerðir.
Tölvuhvíslarinn opnar með þér tæki og sýnir þér hvað leynist undir plastinu og hvernig að virkar.
Verkmenntaskóli Austurlands kynnir nám og námstækifæri við skólann. Auk þess verður umhverfisnefnd VA með kynningu á sínu hlutverki innan skólans.
Nýjustu töfrar & vísindi er stórskemmtileg og fræðandi sýning þar sem Lalli töframaður skoðar hvort það sé einhver raunverulegur munur á töfrum og vísindum.
Sýningin var frumsýnd haustið 2024 í Tjarnarbíói og var sýnd allt það leikár fyrir fullu húsi.!
Nestak er bygginga- og trésmíðaverkstæði sem á ríkan þátt í uppgangi á uppbyggingu húsnæðis í Fjarðabyggð. Komdu og skoðaðu básinn hjá Nestak.
Kaldvík er laxeldisfyrirtæki staðsett á Eskifirði. Komdu við á básnum hjá Kaldvík, taktu þátt í ratleik og kynnstu fyrirtækinu og störfum þess betur.
Vísindasmiðja HÍ er fræðslu og kynningarverkefni á vegum Háskóla Íslands sem vekur áhuga barna og ungmenna á vísindum. Ýmsar skemmtilegar þrautir til að spreyta sig á hjá Vísindasmiðjunni.
Félag fagkvenna er félag fyrir konur og kvár í iðnnámi, sem hafa lokið iðnnámi og sem eru með sveinsbréf í iðngrein sem telst til karllægrar greinar, t.d. byggingariðnaður, rafiðnaður og málmiðnaður. Fagkonur munu kynna sig og eiga spjall við gesti og gangandi.
Er fullt af fatnaði í skápunum sem þú ert löngu hætt/hættur að nota? Komdu með það á fataskiptaslána, hún verður uppi á Tæknideginum!
VA á 40 ára afmæli á árinu 2026.
Kaffi og kökur á boðstólnum
Myndasýning ......
Gervigreindin er um allt núna. Komið við hjá okkur á gervigreindarbásnum og sjáið hvað hægt er að gera með gervigreindinni.
Hársnyrtideildin verður opin. Kynntu þér námið í hárinu og sjáðu flottustu greiðslurnar!
Sestu í stólinn og fáðu sprey eða greiðslu.
Stofa 3
Hægt að kaupa kaffi og með því og styrkja um leið útskriftarnemendur VA sem safna fyrir útskriftarferð.
Listaakademía VA hefur nýlokið við sýninguna Þrek og Tár
Nemendur í listaakademíunni taka á móti ykkur og segja ykkur frá öllu sem snýr að þátttöku í leikfélaginu.
Á bókasafninu verður hægt að spjalla um hlutverk Jafnréttisnefndar VA og kynnast verkefninu SjúkÁst sem er verkefni á vegum Stígamóta um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Í VA var þjóðfundur um daginn þar sem nemendur unnu skemmtilegt spjallverkefni um SjúkÁst sem hægt verður að spreyta sig á.
Vissir þú að nemendur VA smíða smáhýsi frá A - Ö? Og leggja rafmagnið í það líka?
Opið hús í trédeild - kíktu við, sjáðu nemendur að störfum og kynntu þér námið.
Skoðaðu aðstöðuna, finndu timburlyktina. Spjallaðu við nemendur og kennara.
Allt á útopnu í Fab Lab - þrívíddarprentun, vínylskeri, laserskeri ... stafræn framleiðsla í allri sinni dýrð.
Sigldu um heimsins höf í siglingahermi sem nýttur er við kennslu í smáskipanámi við VA.
Ertu hræddur/hrædd við rafmagn? Félag íslenskra rafvirkja verður með ýmis konar verkefni í rafdeildinni.
Mynd með hæðarlínum og – litum er varpað með skjávarpa niður á kassa sem fylltur er með ljósum sandi. Þrívíddarmyndavél sem skynjar hæðir og lægðir í sandinum er svo beint á sandinn. Tækin ,,tala saman“ og þannig er hægt að móta landslag með því að búa til hóla og hæðir í sandinn. Einnig er hægt að láta sýndarveruleikavatn flæða ofan í dældir í sandinum, eins og flóð myndu flæða niður hlíðar fjalla og ofan í dali.
Kíktu á suðuherminn í málmdeild VA
Gufuketilsmódel
Kynnstu námi og störfum í málm- og véltæknigreinum.
Kynnstu námi og störfum í málm- og véltæknigreinum!
Nemendur og kennarar verða á staðnum til skrafs og ráðagerða.
Hvað gerir rafiðnaðarfólk? Hvað er rafbók.is? Kynnist störfum í rafiðnaði.
Vissir þú að nemum í rafiðn stendur til boða þátttaka í alþjóðlegum keppnun?
Í rafdeildinni verður nóg að skoða og prófa.
Fossberg sérhæfir sig í sölu og þjónustu til fagfólks á sviði málmiðnaðar og ætla að kynna það nýjasta á sviði málmsuðu í málm- og véltæknideildinni.
Bílastæði
Björgunarsveitin Brimrún mun koma með nokkur tæki og sýna gestum og gangandi á bílastæðinu.
Slökkvilið Fjarðabyggðar verður á staðnum og mun kynna starfsemi sína ásamt því að gestum verður boðið upp á að slökkva eld og skoða slökkvi- og sjúkrabíl liðsins.