Kynning á starfsemi Alcoa Fjarðaáls ásamt því sem gestir geta skoðað ýmis tól og tæki sem notuð eru í starfsemi fyrirtækisins.
Vilt þú prófa skynfærin til að upplifa mat, t.d. skoða mynstrin innan í grænmeti, finna áferðina af mismunandi ávöxtum og fleira skemmtilegt? Kíktu við!
Egersund Island eru öllum hnútum kunnugir þegar að kemur að veiðarfæragerð og viðhaldi á þeim. Fyrirtækið er líka að þjónusta fiskeldisfyrirtæki með ýmiskonar búnaði og viðhaldi honum tengdum. Komið og skoðið tækin og þjónustuna sem þau bjóða uppá fyrir einn mest vaxandi iðnað landsins.
"Eygló er samstarfsverkefni um eflingu hringrásarhagkerfis, orkuskipta og nýsköpunar á Austurlandi. Kynntu þér málið!"
Félagskonur í félagi fagkvenna verða á svæðinu. Tilgangur félagsins er að hvetja konur til að sækja nám og störf í því sem telst vera karllægar iðngreinar og búa til öflugt stuðningsnet. Kíktu við.
Fjarðabyggð mun kynna skjákerfi vatn- og hitaveitu ásamt því að kynna kortasjánna og skipulagsvinnu.
Fjarðabásar er verslun í Molanum á Reyðarfirði sem býður upp á sölu og kaup á notuðum vörum þar sem fólk getur bókað bás, selt notuð föt og fylgihluti úr sínum eigin fataskáp og þannig verið partur af hringrásinni.
Nám í heimabyggð – Háskólinn á Akureyri býður upp á sveigjanlegt nám í tölvunarfræði sem þýðir að þú þarft ekki að flytja til að stunda háskólanámið.
Kynntu þér hvernig hugbúnaður er þróaður – frá fyrstu línu að tilbúnu kerfi
HSA býður upp á blóðþrýstingsmælingar og blóðsykurmælingar. Kíktu við á HSA básinn og settu heilsuna í forgang!
Hjá Matís er unnið að fjölbreyttum verkefnum í matvælaiðnaði þar sem áhersla er lögð á nýsköpun og verðmætaaukningu. Kíktu við. Einnig stendur Matís fyrir nýsköpunarkeppni í Nesskóla þar sem unnið er með þorskroð sem aðalhráefni.
Náttúrustofa Austurlands vinnur að margskonar náttúrufarsrannsóknum og mun sýna ýmislegt sem veitir innsýn í störf hennar, bæði tæknileg og ótæknileg
Nestak er bygginga- og trésmíðaverkstæði og eiga ríkan þátt í uppgangi á uppbyggingu húsnæðis í Fjarðabyggð. Komdu og skoðaðu básinn hjá Nestak.
Nýsköpunarkeppni grunnskólanna fer fram í fjórða sinn í samstarfi VA og Matís. Í ár unnu nemendur í 8, 9. og 10. bekk Nesskóla með þorskroð. Hittu frumkvöðla framtíðarinnar og kynnstu verkefnunum þeirra.
Sprengju-Kata verður með skemmtilegar og töfrandi efnafræðitilraunir sem vekja forvitni, kveikja vísindaáhuga og sýna að efnafræði getur verið stórskemmtileg og töfrum líkust
Gunnarsstofnun kynnir sýndarveruleika og aukinn raunveruleika sem er nýttur til menningarmiðlunar á Skriðuklaustri.
Verkmenntaskóli Austurlands kynnir nám og námstækifæri við skólann. Auk þess verður umhverfisnefnd VA með kynningu á sínu hlutverki innan skólans.
Í vísindasmiðju Háskólans á Akureyri fá börn á leikskólaaldri tækifæri til að kynnast STEAM verkefnum með aðstoð foreldra sinna, svo sem að setja saman róbóta (Cubelets) eða forrita Blue-bot. Hægt er að byggja úr lýsandi legókubbum eða venjulegum og gera tilraunir með liti, ljós og skugga svo dæmi séu tekin
Óvæntar uppgötvanir og skemmtilegar tilraunir fyrir alla fjölskylduna; teikniróla, syngjandi skjál, þrautir, hljóðtilraunir, teikniþjarkar og fjölmargt fleira!
Já, sumt er einfaldlega ómissandi ... klassískt atriði sem vekur lukku á ári hverju hjá ungum og öldnum ... ,,Doddi kryfur" ...að öllum líkindum verður minkur undir hnífnum í ár ... og þó, Doddi getur nú verið óútreiknanlegur :)
Stofa 1 kl. 13 og 15
Er fullt af fatnaði í skápunum sem þú ert löngu hætt/hættur að nota? Komdu með það á fataskiptaslána, hún verður uppi á Tæknideginum!
VA er meðal bestu skóla á landinu í spurningakeppnum.
Þorir þú að spreyta þig í spurningakeppni? Spurningar úr öllum áttum fyrir allan aldur.
Stofa 2
Gervigreindin er um allt núna. Komið við hjá okkur á gervigreindarbásnum og sjáið hvað hægt er að gera með gervigreindinni.
Hársnyrtideildin verður opin. Kynntu þér námið í hárinu og sjáðu flottustu greiðslurnar!
Sestu í stólinn og fáðu sprey eða greiðslu.
Stofa 3
Hægt að kaupa kaffi og með því og styrkja um leið 9. bekk Nesskóla sem safnar fyrir skólaferðalagi
Síldarvinnslan kynnir ýmislegt sem tengist starfsemi fyrirtækisins og býður gestum upp á spennandi smakk.
Stofa 4
Listaakademía VA hefur nýlokið við sýninguna Heathers
Nemendur í listaakademíunni taka á móti ykkur og segja ykkur frá öllu sem snýr að þátttöku í leikfélaginu.
Á bókasafninu verður hægt að spjalla um hlutverk Jafnréttisnefndar VA og kynnast verkefninu SjúkÁst sem er verkefni á vegum Stígamóta um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Í VA var þjóðfundur um daginn þar sem nemendur unnu skemmtilegt spjallverkefni um SjúkÁst sem hægt verður að spreyta sig á.
Vissir þú að nemendur VA smíða smáhýsi frá A - Ö? Og leggja rafmagnið í það líka?
Opið hús í trédeild - kíktu við, sjáðu nemendur að störfum og kynntu þér námið.
Skoðaðu aðstöðuna, finndu timburlyktina. Spjallaðu við nemendur og kennara.
Allt á útopnu í Fab Lab - þrívíddarprentun, vínylskeri, laserskeri ... stafræn framleiðsla í allri sinni dýrð.
Fossberg sérhæfir sig í sölu og þjónustu til fagfólks á sviði málmiðnaðar og ætla að kynna það nýjasta á sviði málmsuðu í málm- og véltæknideildinni.
Ertu hræddur/hrædd við rafmagn? Félag íslenskra rafvirkja verður með ýmis konar verkefni í rafdeildinni.
Mynd með hæðarlínum og – litum er varpað með skjávarpa niður á kassa sem fylltur er með ljósum sandi. Þrívíddarmyndavél sem skynjar hæðir og lægðir í sandinum er svo beint á sandinn. Tækin ,,tala saman“ og þannig er hægt að móta landslag með því að búa til hóla og hæðir í sandinn. Einnig er hægt að láta sýndarveruleikavatn flæða ofan í dældir í sandinum, eins og flóð myndu flæða niður hlíðar fjalla og ofan í dali.
Fylgstu með gangsetningu díselvélar!
Prófaðu vélarrúmsherminn, loftstýringar eða þrautina í rennibekknum!
Kynnstu námi og störfum í málm- og véltæknigreinum!
Nemendur og kennarar verða á staðnum til skrafs og ráðagerða.
Hvað gerir rafiðnaðarfólk? Hvað er rafbók.is? Kynnist störfum í rafiðnaði.
Vissir þú að nemum í rafiðn stendur til boða þátttaka í alþjóðlegum keppnun?
Í rafdeildinni verður nóg að skoða og prófa.
Sigldu um heimsins höf í siglingahermi sem nýttur er við kennslu í smáskipanámi við VA.
Bílastæði
Kynning á starfsemi Alcoa Fjarðaáls ásamt því sem gestir geta skoðað ýmis tól og tæki sem notuð eru í starfsemi fyrirtækisins.
Slökkvilið Fjarðabyggðar verður á staðnum og mun kynna starfsemi sína ásamt því að gestum verður boðið upp á að slökkva eld og skoða slökkvi- og sjúkrabíl liðsins.
Tandraberg veitir alhliða upp- og útskipunarþjónustu í höfnum Fjarðabyggðar og þekktir fyrir framleiðslu vörubretta sem seld eru til fiskframleiðenda.