Skólastjórafélag Íslands er í samstarfi við Kennarasambandið í Alberta fylki í Kanada um verkefni þar sem kennarar og skólastjórnendur eru paraðir saman og heimsækja skóla hver annarra. Þetta verkefni hefur verið í gangi um nokkurt skeið milli Alberta fylkis og Ástralíu, Spánar og Þýskalands var prófað í fyrsta skipti á Íslandi skólaárið 2018-2019.
Verkefnið sem er gagnkvæmt, felur það í sér að kennari eða skólastjórnandi á Íslandi fær tækifæri til að fylgja eftir skólafólki í Kanada í 10 daga og öfugt. Íslenski aðilinn fylgir eftir þeim kandadíska í 10 daga að hausti, gistir á heimili viðkomandi og fylgir honum eftir í vinnu þann tíma sem um ræðir. Á sama hátt hýsir íslenski þátttakandinn þann kandadíska, sem fylgir honum eftir í starfi á Íslandi um tveggja vikna skeið á vorönn. Einnig er gert ráð fyrir að á dvalartímanum kynnist báðir aðilar menningu og landi viðkomandi.
Skipti sem þessi bjóða upp á einstakt tækifæri til að kynnast og bera saman mismunandi skólakerfi, gæði og skipulag skólastarfs í ólíku landi, nám án aðgreiningar og margt fleira. Þá gefst tækifæri til að kynnast vel viðkomandi svæði og skapa hugsanleg tengsl milli skóla til lengri framtíðar.
Umsóknarferli
Kennarasamband Íslands auglýsir eftir umsóknum frá félagsmönnum sínum. Á sama tima sendir kennarasambandið í Alberta út svipuð boð til sinna félagsmanna. Það sem umsækjendur þurfa að hafa í huga er t.d.:
Krafist er góðrar enskukunnáttu.
Umsækjendur þurfa að búa yfir sveigjanleika, góðri aðlögunarhæfni og fjölmenningarlegum áhuga.
Umsækjendur þurfa að búa yfir leiðtoga- og samskiptahæfni, frumkvæði og félagslegum styrk.
Starfsmenn kennarasambandanna para síðan saman umsækjendur. Ekki er gengið frá skiptum nema báðir aðilar sem fá tilboð um þátttöku samþykki mótaðilann.