a.k.a. Sigríður Helga Hauksdóttir og Margrét Óskarsdóttir.
SigMar Stórholt kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2016. Hann er hugarsmíð, alteregó og samruni listakvennanna Sigríðar og Margrétar.
Nafn hans er búið til úr þremur fyrstu stöfum nafna þeirra beggja og Stórholt er heimilisfangið. Nafnið hefur táknræna merkingu fyrir samstarf þeirra en SigMar hefur þróast og tekið á sig sjálfstæðan karakter listamanns með eigin stefnu.
Alteregóið SigMar opnar dyr inn í nýja vídd listsköpunar þeirra beggja þar sem einstaklingurinn gefur eigið egó fullkomlega uppá bátinn og sleppir lausum þeim hömlum sem áður hafa flækst fyrir sköpunarferlinu. Flæði og samruni einkenna samvinnuna. Engir hlutir eru tabú, engin viðfangsefni of erfið til að takast á við og víkkun þægindarammans verður markmið útaf fyrir sig.
Karlkyns karakterinn SigMar hefur gefið samstarfinu áður óþekkt frelsi. Frelsi undan fyrirframgefnum rullum konunar sem jafnt samfélagið og sjálfið hefur sett, frelsi frá hlutverki “góðu stelpunnar”, frelsi til að leita gagnrýnið inn á við og frelsi til að skoða fordóma í eigin garð, leita róta tepruskaps, feimni, og fegurðarstaðla, skoða feminískar staðlamyndir og karllægni listasögunnar.
SigMar hefur sótt innblástur sinn í kvennlíkamann og hugmyndir Gestalt sálfræðinnar. Þar er m.a. fjallað um hvernig skynheildir móta mat manna á veruleikanum og að heildin sé meira en hlutar hennar samanlagðir. Tónverk er meira og stærra en bara safn stakra nótna. Verk SigMars er leikur að þessari skynjun hluta og brota í þeim tilgangi að búa til heildir til að skilja umhverfi sitt. Með því að raða kunnuglegum pörtum upp á óræðan hátt verður til ný heild og með því að hræra upp í kunnuglegri heild verða til nýir partar sem svo aftur skapa nýja skynheild.
SigMar hefur haldið tvær sýningar:
“Uppbrot” - Skúlptúrar/veggverk unnin í steypu og keramík, vídeóverk inní keramíkskúlptúrum, olíumálverk (ágúst 2017 Gallerí 78)
“Flækjur” Skúlptúrar/veggverk unnin annars vegar í streypu og frauð og tré hinsvegar, (desember 2016 Gallerí 78)
Margrét Óskarsdóttir útskrifaðist frá The American Academy of Dramatic Arts sem leikari árið 1993 og kláraði BA í leiklist og kvikmyndagerð frá Hunter College árið 2000. Hún hefur leikstýrt og sett upp leiksýningar hér á landi sem og í New york, unnið stuttmyndir og vídeóverk og sett upp innsetningar með vídeói, málverkum og fundnum hlutum. Meðal sýninga má nefna Taken for a loop í Flat iron theater sem hún skrifaði, leikstýrði og framleiddi árið 2003. Bodyparts - organs with soul vídeóverk sýnt á Canal street Roof top í New York 2005. Klámljóð vídeóverk og málverk á Pop up gallerí á Hverfisgötu 105, 2009.
Sigríður Helga Hauksdóttir útskrifaðist sem þrívíddarhönnuður frá Brunel University í Bretlandi árið 1996. Frá árinu 2003 til 2016 hefur hún kennt myndlist, mótgerð, keramik, hönnun og hugmyndavinnu við Myndlistaskólann í Reykjavík og Listaháskóla Íslands. Sigríður vinnur verk sín í ýmsa miðla s.s. leir, málm, vídeó, olíu og við. Hún hefur haldið 3 einkasýningar hér á landi og tekið þátt í nokkrum samsýningum bæði hér og í Bretlandi.