Lungnasjúkdómar

COVID-19

Sértu í sóttkví, í hættu á Covid-19 smiti, með flensueinkenni eða illa kvefaður, ertu vinsamlegast beðinn um hafa samband og fresta bókuðum tíma, eða skoða möguleika á að fá símtal eða fjarlækningaviðtal í staðinn.

s. 535-7700 eða á setrid@setrid.is

COVID-19 og lungnasjúkdómar

Sýking með SARS-COV-2 veirunni veldur COVID-19 sjúkdómi. Veiran veldur sýkingu í efri hluta öndunarfæra sem eru nefhol og kok og hjá sumum í neðri öndunarfærum sem eru berkjur og lungnablöðrur Þess vegna hefur fólk með langvinna lungnateppu verið skilgreint sem sérstakur áhættuhópur vegna COVID-19 sýkinga. Almennt má gera ráð fyrir að þetta eigi við um alla lungnasjúkdóma nema þá vægasta form til dæmis astma sem ekki gefur dagleg einkenni. Reykingar eru líka áhættuþáttur

Hvað er hægt að gera til að koma í veg fyrir sýkingu?

Embætti Landlæknis gaf út ítarlegar leiðbeiningar 7. mars 2020 sem gott er að lesa.

Það er mikilvægt að forðast sýkingu með öllum ráðum: Það gildir eins og fyrir aðra að: þvo hendur oft og vel á réttan hátt; forðast að snerta andlitið áður en maður þvær og þurrkar sér um hendurnar;, sótthreinsa yfirborð sem maður snertir oft; ekki deila með öðrum mat, gleraugum, handklæðum, áhöldum o.s.frv..; hósta í olnbogabótina eða í klút; forðast alla sem eru með einkenni um öndunarfærasýkingu; forðast fjölmenna staði (ferðalög, tónleika, bíó, almenningssamgöngur) og halda hæfilegri fjarlægð við aðra helst 2 m og loks ef þú ert lasinn... vertu þá heima! Hægt er að fá vottorð hjá lækni ef fólk vill stunda nám eða vinnu að heiman.

EF ÞÚ ERT MEÐ LUNGNASJÚKDÓM:

  • undirbúðu þig vel ef til þess kæmi að þú þyrftir að fara í sóttkví eða einangrun.
  • gættu að því að eiga nægar birgðir af öndunarfæralyfjum og öðrum lyfjum sem þú tekur reglulega. Hugsaðu hvað þú þarft að eiga mikið fyrir næstu 4 vikur. Taktu öll lyf eins og þér er ráðlagt. Ekki hætta að taka ónæmisbælandi lyf nema í samráði við lækni. Hafðu samráð við þinn lækni hvort þú eigir sýklalyf og stera heima til að bregðast við versnunum.
  • pantaðu mat á netinu ef þú vilt ekki fara út að versla -hættu að reykja og fáðu ráð til þess og lyf ef þarf
  • hreyfðu þig reglulega. Ef þú vilt ekki fara í þína reglulegu líkamsþjálfun skaltu nýta þér leikfimi í útvarpi eða sjónvarpi og þætti sem hægt er að nálgast á Netinu. Ef þú treystir þér til og veður leyfir ættir þú að ganga úti.
  • ef þú færð flensulík einkenni (háan hita, hósta, öndunarerfiðleika auk vöðvaverkja), þá er mjög mikilvægt að þú hafir samband við lækni og/eða símanúmer 1700. Hafðu tilbúin símanúmer hjá þínum lækni og/eða hjúkrunarfræðingi og vertu með rafrænan aðgang að heilsuvera.is. Algengt er að lungnasjúklingar fái versnanir á sínum sjúkdómi. Hvernig er hægt að greina á milli? Versnunum á undirliggjandi lungnasjúkdómi fylgja sjaldnast hár hiti og vöðvaverkir sem gæti frekar verið COVID-19.
  • ef þú býrð ein/einn vertu þá viss um að einhver sem þú treystir viti að þú ert með lungnasjúkdóm og geti aðstoðað þig ef þú veikist og þarft á hjálp að halda

Gangi þér vel!

Gunnar Guðmundsson, lungnalæknir