Hver er Ólöf?

Ég hef fyrst og fremst lagt stund á vefnað sem listgrein og hef notað gamla aðferð – spjaldvefnað í verkin mín. 

Möguleikar spjaldvefnaðarins hafa reynst mér ótæmandi og eftir að hafa einskorðað mig við veggverk um tíma, fór ég að vinna smáskúlptúra og síðan stærri fríhangandi rýmisverk. 

Ég nota aðallega hör, hrosshár og sisal í verkin mín og lita yfirleitt efnið sjálf. Myndefnið sæki ég mest í íslenska náttúru, en seinni ár hef ég skoðað forna skreytilist og reynt að tjá það með spjaldvefnaðinum í formi smærri veggverka og jafnvel skartgripa. 

Frá árinu 2002 hef ég jafnframt verið í samvinnu við glerlistakonuna Sigrúnu Ólöfu Einarsdóttur. Við höfum telft saman gleri og textíl og leitast eftir að finna jafnvægi á milli þessara ólíku miðla í verkum okkar.