Listavor í Sögu
Laugardaginn 30. maí 2026 Upplýsingar um viðburðinn
Laugardaginn 30. maí 2026 Upplýsingar um viðburðinn
Lýsingar á smiðjum í boði (13:30-14:30)
Hönnun og smíði
„Græn stund" er smiðja á vegum Hönnunar- og smíðavals MVS þar sem tálgaðar eru dularfullar verur eða annað úr mjúkum íslenskum trjávið. Kynnt verða einföld læst hnífsbrögð og áhersla lögð á persónulega sköpun. Þátttakendur styrkja tengsl sín við náttúruna og rækta núvitund í gegnum einfalt handverk. Allir aldurshópar eru velkomnir að fikta og prófa.
Kennari: Signý Traustadóttir
Leiklist
Í þessari vinnusmiðju sem er á vegum Rannsóknarstofu í leiklistarfræðum verður unnið með aðferðir leiklistar og leikja í námi m.a. með áherslu á samþættingu við greinar eins og stærðfræði, íslensku, samfélagsfræði og landafræði. Þátttakendur fá tækifæri til að vinna á fjölbreyttan hátt að skapandi og praktískum verkefnum.
Kennarar:
Rannveig Björk Þorkelsdóttir
Jóna Guðrún Jónsdóttir
Halldóra Rósa Björnsdóttir
Sjónlistir
Sjónlistastofan er nýtt sérhæft kennslurými á Menntavísindasviði sem styður skapandi listkennslu og þróunarverkefni. Boðið verður upp á örsmiðju þar sem þátttakendur kynnast fjölbreyttum efniviði og tækni. Markmiðið er að efla samtal, miðlun reynslu og tengsl milli vettvangs, háskólasamfélags og skapandi skólastarfs.
Kennari: Hanna Ólafsdóttir
Textíll og hönnun
Í smiðjunni verður hugað að eldri og nýjum textílaðferðum og viðraðar hugmyndir um hvernig þær muni birtast í námi og kennslu faggreinarinnar séð til framtíðar. Þátttakendur eiga síðan samtal um áherslur og tengingu textílgreinarinnar milli allra skólastiga; leik-, grunn-, framhalds- og háskóla.
Kennari: Ásdís Ósk Jóelsdóttir
Tónlist
Í tónlistarsmiðju verða kenndir fjölbreyttir tónlistarleikir sem byggja á virkni og þátttöku nemenda í skólastofunni. Kenndir verða söngvar, klappleikir, dansar og hljóðfæraleikir sem nýtast beint í kennslu barna. Kynnt verður ný vefsíða með kennsluhugmyndum og efnivið fyrir tónmenntakennara og aðra sem vilja flétta tónlist inn í sína kennslu.
Kennari: Helga Rut Guðmundsdóttir
Dr. Anne Bamford er gestaprófessor við Menntavísindasvið HÍ og vel þekktur sérfræðingur á sviði menntunar frá Ástralíu. Bamford vann að umfangsmikilli úttekt á stöðu listkennslu á Íslandi árin 2009 til 2010 og hefur frá 2022 starfað sem gestaprófessor við HÍ. Rannsóknir hennar snúa meðal annars að nýsköpun á sviði menntunar, samfélagsáhrif rannsókna, jafnrétti og fjölbreytileika. Sem alþjóðlegur fræðimaður fyrir UNESCO hefur Anne stýrt umfangsmiklum mats- og úttektarrannsóknum fyrir stjórnvöld í Danmörku, Hollandi, Belgíu, Íslandi, Hong Kong, Írlandi og Noregi. Meðal fjölda greina og bókakafla sem hún hefur skrifað er bókin The Wow Factor: Global research compendium on the impact of the arts in education, sem hefur verið gefin út á fimm tungumálum og dreift til yfir 40 landa”