Nemendur á forstigi eru að hefja nám í íslensku sem öðru tungumáli. Þeir eru ýmist nýkomnir til landsins eða hafa ekki enn náð þeirri færni sem þarf til að taka virkan þátt í skólastarfi á íslensku. Hópurinn er fjölbreyttur að aldri, bakgrunni og fyrri menntun, en eiga það sameiginlegt að vera á fyrstu þrepunum í íslenskunámi.
Á þessu stigi eru nemendur að:
Þekkja íslenska bókstafi og málhljóð.
Mynda grunnorðaforða og læra einfaldar setningar.
Fylgja einföldum leiðbeiningum með stuðningi frá myndum, látbragði og líkamsmáli.
Aðlagast nýju málumhverfi og skólaaðstæðum.
Kennsla á forstigi byggir á skýrum ramma, sjónrænum og hreyfimiðuðum verkefnum og miklum endurtekningum. Lögð er áhersla á að skapa öruggt námsumhverfi þar sem nemendur geta vaxið, notið sín og lagt grunn að frekara íslenskunámi.