Orðainnlagnir, sagan, verkefnin og myndasagan mynda samfellda og markvissa kennsluleið. Nemendur læra sömu orð og Alejandro í sögunni, framkvæma svipuð verkefni og þróa skilning á sögunni bæði í orðum og myndum. Hver númeraður hluti byggir að einhverju leiti á fyrri hlutum. Því er mikilvægt að fara í gegnum efnið eins og það er sett upp. Gert er ráð fyrir leiðsagnarnámi til að meta færni nemenda. Það má alltaf fara til baka og eða fara aftur í gegnum söguna og verkefnina og dýpka nám nemenda.
Kennslan getur miðast við færnistig nemenda:
Nemendur skoða orð og myndir.
Æfa framburð og orðhljóð.
Nota söng og leik til að kynnast orðaforða.
Unnið með einfaldar setningar og spurningar.
Lesa með stuðningi og svara einföldum lesskilningsspurningum.
Búa til setningar, lýsa myndum og segja frá.
Tjá tilfinningar persóna og ræða samhengi í texta og myndum.
Athugið: Þó nemendur séu á fyrsta eða öðru stigi, er afar gagnlegt að þeir fari einnig í gegnum orðainnlagnir og verkefni sem ætlað er forstigi. Þessi verkefni byggja upp grunn sem nýtist á öllum stigum og geta lengra komnir nemendur dýpkað vinnu sína með sömu orðunum á flóknari hátt.
Orðainnlagnir tengjast beint sögunni og má nýta á margvíslegan hátt:
Forstig: Einfaldar hljóð- og stafatengdar æfingar.
1.–3. stig: Sköpun setninga með orðum úr sögunni, leikur með framburð, söngur og ritun.
Orðainnlagnir henta öllum stigum og geta verið sérstaklega gagnlegar til að dýpka skilning og efla orðaforða hjá lengra komnum nemendum, þó þær séu hannaðar með yngri stig í huga.
Söngur hefur reynst afar árangursríkur til að efla minni, framburð og gleði í námi. Rannsóknir sýna að við lærum betur þegar við syngjum. Nánar má lesa um þetta á síðunni ÍSAT og tónmennt.
Sagan um Alejandro er aðgengileg fyrir ólíka nemendahópa:
Læsir nemendur: Lesa sjálfir og svara spurningum sem æfa lesskilning.
Ólæsir nemendur: Kennari les söguna og nemendur fylgjast með og ræða innihaldið.
Myndasagan býður upp á fjölbreytta kennslumöguleika:
Skoða myndir og læra einstaka orð.
Nota myndir sem örvun fyrir tjáningu og leik.
Lesa söguna með myndum til stuðnings.
Lýsa myndunum, ræða tilfinningar persóna og búa til eigin sögur út frá myndunum.
Með því að nýta þessa samfelldu kennsluleið er hægt að mæta ólíkum þörfum ÍSAT-nemenda á markvissan hátt, þar sem orðaforði, lesskilningur, tjáning og sköpun haldast í hendur.