Titill verksins: Ég er að hugsa um Reynisvatn eða Fimm dagar á Reynisvatni eða Göngutúr kringum Reynisvatn eða Reynisvatn dag eftir dag eða eitthvað svoleiðis.
Viðfangsefnið: Ég er að hugsa um að gera vídeo og taka upp á meðan ég labba í kringum Reynisvatn. Ég var að hugsa um að kannski taka taka vídeo af vatninu eða beint fyrir framan mig eða á mismunandi tíma eða mismunandi veðrum og spila það hratt. Svo ákvað ég að fara kringum Reynisvatn og taka vídeó í fimm bútum fimm daga í röð. Þannig að fyrsta daginn tek ég hluta af leiðinni upp og næsta dag tek ég næsta hluta af leiðinni og svo framvegis.
Ég valdi þetta viðfangsefni vegna þess að ég labba oft í kringum Reynisvatn og það er alltaf fallegt sama hvaða veður er og útsýnið er alltaf mismunandi þó þetta sé alltaf sama staðurinn.
Útfærslan verður heilt vídeó af öllum labbitúr í kringum vatnið tekið upp á fimm mismunandi dögum.
Hérna er eitt vídeóið.
3 maí
ég er búin að vera að halda áfram að taka upp vídeóin og ég er að hugsa um að gera meira en fimm daga og hafa kannski tónlist í videóinu eða hljóð sem eru hjá vatninu.
9 maí 2026
Lokaverkefnið mitt heitir Reynisvatn dag eftir dag.
Mér datt í hug að gera þetta af því að ég labba oft kringum Reynisvatn og það er alltaf fallegt útsýni þar en alltaf mismunandi út af veðrinu.
Ég tók upp vídeó af vatninu meðan ég var að labba í kringum það, lítinn bút í hvert skipti. Svo klippti ég þá saman og setti tónlist og spila það á tíföldum hraða.
Ég hélt það yrði mjög mismunandi veður en veðrið var næstum eins flesta dagana. Það breyttist samt smá í lok tímabilsins. Ég held ég hafi tekið upp átta daga.