Kortagerð er hægt að nýta hvenær sem er í dæmigerðu námsferli.
Í upphafi náms er kjörið að laða fram forþekkingu nemenda og virkja hana til frekara náms. Þar má t.d. vel nýta aðferðir eins og KVL eða Spurningavefi. Draga má saman helstu atriði sem koma fram í þeirri vinnu og flokka upplýsingarnar. Kjörið er að búa til yfirlitskort ... sem setur efnið í röklegt samhengi og greinir á milli aðalatriða og aukaatriða.
Þegar námsefni er svo frekar krufið er kjörið að búa til lítil yfirlitskort, taka saman helstu efnisgreinar og setja upp sem lítil hugræn kort ... og eins og áður segir að greina þannig á milli aðalatriða og aukaatriða.
Þegar að uppgjöri kemur (þegar námi lýkur) er kjörið að búa til stærra yfirlitskort ... frá hinu almenna til hins sértæka, eins ítarlegt og markmið náms gera kröfur um.
Sama á við um upprifjun síðar meir. Þá er hægt að draga fram yfirlitskort (samhengi) og þess vegna bæta við það eftir því sem við á ... t.d. með því að renna yfir námsefnið og sjá hvort eitthvað mikilvægt vantar.
Finna má nokkur góð dæmi um kennsluhugmyndir á vefnum, m.a. á Læsisvefnum.
Þar má finna dæmi um ólíka kortagerð.
Þá má finna grein í Skólaþráðum um hugtakakort í ritunarkennslu.