Grunnþættir menntunar



Með þessum sex grunnþáttum er lögð áhersla á að rækta með markvissum hætti þá þekkingu, leikni og viðhorf sem styrkir getu einstaklinga í framtíðinni til að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í jafnréttis- og lýðræðissamfélagi.

Í Grunnskólanum á Ísafirði viljum við að þessir sex grunnþættir endurspeglist í öllu okkar starfi. Einnig viljum við að þeir séu öllum sýnilegir í skólastarfinu.

Starfsfólk Grunnskólans á Ísafirði hefur sett sér viðmið um hvernig það vill sjá, heyra og finna þá þekkingu, leikni og viðhorf sem fram kemur í grunnþáttum menntunar.