Á Íslandi hafa ný  lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna (nr. 86/2021) tekið gildi. Þessi lög varða öll börn og ungmenni á Íslandi frá 0 - 18 ára aldurs. Meginmarkmið laganna er að búa til umgjörð sem stuðlar að því að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Samþætt þjónusta í þágu farsældar barns er skipulögð og samfelld og hefur það markmið að skapa heildarsýn og ramma um þau þjónustukerfi sem skipta mestu máli fyrir farsæld barna.

Öll börn og foreldrar skulu hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf krefur. Hlutverk tengiliða er fyrst og fremst að veita upplýsingar, aðstoða foreldra og barn og styðja við samþættingu á fyrsta stigi í samræmi við óskir foreldra og/eða barns. Foreldrar og börn geta leitað sjálf beint til tengiliðar eða sent beiðni í gegnum þjónustugátt Ísafjarðarbæjar.

Tengiliðir í Grunnskólanum á Ísafirði eru:



Hér má finna upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barna í Ísafjarðarbæ.