Got

Fyrirhugað got 2022

Í marsbyrjun 2022 voru Fóellu Snotra og RW-21 Puy Tindur De la Riviere Ouareau pöruð og vonumst við til að sjá hvolpa í maí byrjun.


Báðir hundar eru með A2 mjaðmir.

Báðir hundar hafa átt velgengni að fagna í veiðiprófum og sýningum. Fylgið hlekknum á nöfnunum hér að ofan fyrir frekari upplýsingar.


Áhugasamir hvolpakaupendur geta fengið frekari upplýsingar í síma 690-1179 eða sent tölvupóst á kariibsen@gmail.com

Það var mikil gleði og vinna síðastliðið föstudagskvöld er 5 flottir hvolpar ruddust út í heiminn á innann við 90 mínútum. Þrjár tíkur og tveir rakkar eru þessa daganna að hlaða í sig orku á mjólkurbarnum.

Síðan verður uppfærð - fylgist með.