DRAUMASTEINN
- Bergþóra -
- Bergþóra -
Hæ! Ég heiti Bergþóra og ég er eigandi Draumasteins. Velkomin❤️. Ég býð upp á vandaða og fallega kristalla á góðu verði. Að eiga kristallabúð hefur verið draumur hjá mér lengi og nú fæ ég loksins að deila með ykkur áhuga mínum og reynslu af kristöllum! <3
Draumasteinn er í Síðumúla 11, gakktu hliðarmegin inn og upp stigann.
AFGREIÐSLUTÍMI
Sunnudagar 12 00 - 17 00
HEIMSENDINGAR!💕 !! ATH, BARA Í RVK !!
Ég býð upp á heimsendingar fyrir alla sem vilja kaupa yfir 3500 kr. Að pakka öllu saman tekur tíma og ég vil keyra með sendingar sjálf til ykkar💗 Þú borgar ekkert auka fyrir heimsendinguna sjálfa, bara venjulega verðið á kristöllunum sem þú kaupir. Ef þú vilt heimsendingu skaltu eiga samband við mig á email, tiktok skilaboðum eða instagram skilaboðum. Segðu mér hvaða kristalla þú vilt kaupa. (Myndirnar eru á Instagram) Borgað verður þegar ég kem með sendinguna til þín.🧡 Allar heimsendingar fá 2-4 kristalla gefins úr kristallamixinu sem ég hef búið til! <3 EKKI HÆGT AÐ BORGA MEÐ KORTI !!
----
Það er því miður ekki hægt að borga með korti í búðinni. Ég get ekki verið með posa því það er mjög dýrt að leigja þá og ég er auðvitað bara að prófa mig áfram í fyrirtækinu mínu. En ef það gengur vel að selja þá gæti ég mögulega boðið upp á posa. 😉
INSTAGRAM - Draumasteinn
TIKTOK - Draumasteinn