Styrktarþjálfun fyrir íþróttafólk & þá sem vilja æfa eins og íþróttafólk!
Um mig
Andri Freyr Hafsteinsson
ÍAK einkaþjálfari, ÍAK styrktarþjálfari, UEFA B knattspyrnuþjálfari, Precision Nutrition og fleira.
Starfandi styrktarþjálfari á knattspyrnudeild Stjörnunar.
10 ára reynsla af þjálfun íþróttamanna.
Brennandi áhugi á að hjálpa eins mörgum leikmönnum og hægt er að ná sem lengst.
Um þjónustu
Hannað með það í fyrirrúmi að aðstoða leikmann við að framkvæma markvissa styrktarþjálfun allt árið um kring.
Einstaklingsmiðuð þjálfun með stöðugri eftirfylgni.
Ráðgjöf varðandi meiðslaforvarnir, næringu, endurheimt, þolþjálfun og fleira innifalið.
Þjálfun
Í upphafi svarar leikmaður spurningalista um sitt líkamlega atgervi og markmið.
Með þeim upplýsingum sem ég fæ úr spurningalistanum set ég upp langtímaplan fyrir þig.
Með samskiptum okkar á milli pössum við uppá að þú æfir passlega mikið, að æfingarnar henti þér og þú sért að bæta þig jafnt og þétt.
Mismunandi áhersla á forvarnir, stöðugleika, styrk eða sprengikraft eftir þínum þörfum og tíma árs.
XPS client appið
Leikmaður fær aðgang að prógrömum í gegnum símann inná dagatalið sitt.
Myndbönd og útskýringar með öllum æfingum.
Hægt að skrá þyngdir og sjá framfarir í appinu sem er mjög hvetjandi.
Samskipti og eftirfylgni
Þú getur haft samband hvenær sem er í gegnum appið og þér er svarað innan við sólarhring!
Öll umræða um líkamlega þjálfun er í boði. Mikilvægt að þú hafir samband og spyrjir ef þig vantar eitthvað.
T.d upplýsingar um endurheimt, næringu, þolþjálfun, forvarnir er allt eitthvað sem ég get líklega hjálpað þér með.
Góð samskipti mikilvæg til að einstaklingsmiða prógramið þitt eins mikið og hægt er.
Ferlið
Verð
Umsagnir
Ásgerður Stefanía
Andri hjálpaði mér að komast til baka eftir mikil og erfið mjaðmameiðsli.
Hann var alltaf klár í að gera sérhæft prógram fyrir mig og var sérstaklega klókur í því að aðlaga öll prógröm að mínum þörfum.
Fyrir mig sem íþróttamann er eitt það allra mikilvægasta að finna það að þjálfarinn sé með mér alla leið í að koma mér sterkari út á völlinn aftur og ég fann það svo sannarlega hjá Andra.
Hilmar Árni
Andri er metnaðarfullur þjálfari sem sýnir þér mikinn áhuga og vill sjá framfarir hjá þér.
Það er gott að leita til hans með hluti sem þú vilt bæta.
Hjá honum hef ég bætt tæknileg atriði bæði í lyftingum sem og sprettum sem hefur skilað sér auknum hraða og krafti inná vellinum.