Reynið að skapa reglu og gott andrúmsloft í kringum heimalesturinn strax í upphafi skólans þannig að lesturinn geti orðið ánægjuleg samverustund. Skoðið bókina með barninu og beinið athygli þess að umgjörð bókarinnar, heiti hennar, myndum, sögupersónum o.fl. til að komast inn í efni sögunnar og vekja áhuga á því.
Látið barnið fylgja línum eftir með fingri um leið og það les. Rifjið upp stafi og hljóð sem barnið hikar við og fylgist með að það þekki örugglega alla stafina því það er grunnur að góðri lestækni.
Gott er að spyrja leiðandi spurninga til að fá barnið til að giska á innihald sögunnar og tjá sig um það t.d. um atburði, framvindu, fyrirætlan, hugarástand og líðan sögupersónanna. Fáið barnið til að segja frá efni sögunnar, ræðið efni textans og látið reyna á ályktunarhæfni þess.
Hrósið barninu fyrir það sem gengur vel til að uppörva það og hvetja. Reynið að vera þolinmóð og jákvæð og láta barnið ekki heyra ef þið eruð áhyggjufull, talið við kennara ef lestrarnámið gengur ekki nægilega vel.