Hér verða hlekkir í myndir frá Króatíu.
Endilega sendið Eygló tölvupóst með upplýsingum um hvar má finna myndirnar ykkar frá Króatíu.
Smelltu hér til að skoða myndir frá Eygló og Sigga:
Smelltu hér til að skoða myndir frá dóttur Sigga & Eyglóar sem keyrði frá Danmörk suður til Króatíu.
Smelltu hér til að skoða myndir frá syni Sigga & Eyglóar sem var í húsinu frá 4-16. ágúst 2011. Myndirnar eru allar staðsettar. Þ.e.a.s. þú getur séð staðsetningu á korti hvar hver mynd var tekin. Kortið er hægra megin við myndina.
Ef þú átt myndir frá Króatíu sem þig langar að deila með okkur hinum en veist ekki hvernig, þá mæli ég með því að gera það í gegnum google og Picasa.
Picasa er myndaforrit sem gerir þér kleift að skoða og vinna með myndir sem staðsettar eru á tölvunni þinni. Mjög auðvelt er að hlaða myndum upp á vefinn frá þessu forriti.
Til þess að hlaða myndum upp á vefinn er auðveldast að gera það í gegnum google reikning (account). Ef þú hefur ekki google reikning (sama og gmail reikningur) þá getur þú búið hann til beint úr Picasa forritinu. Sjá hlekk efst uppi til hægri þegar þú hefur ræst forritið.
Svo hleður maður myndunum upp þannig að allir á vefnum geti séð þær (public on the web).
Þegar þú hefur gert þetta þá sendir þú mér slóðina að myndunum og ég set slóðina á þessa síðu svo við getum skoðað myndirnar þínar.
Hægt er að sækja Picasa á íslensku hér: http://picasa.google.com
Nýi bíllinn