Fréttir frá 

ÍSAT-landi

Á þessari síðu eru myndir, myndbönd og frásagnir frá því sem er að gerast í ÍSAT landi

Komið þið sæl og blessuð! 4.júní 2024


Nú er þessu skólaári senn lokið og komið að kveðjustund.

Það hefur verið bæði óskapleg gaman og lærdómsríkt að starfa með börnunum ykkar í vetur. 

Vetrinum lauk með kynningum á verkum nemendanna í ÍSAT landi. 

Verkefnin voru afar metnaðarfull,  bæði í fomi ritunar og leiklistar. Nemendur buðu til kynninga og æfðu sig þannig í að koma fram fyrir aðra og segja frá því sem þeir höfðu verið að gera. 

Mikið sem við öll getum verið stollt af þessum duglegu krökkum.

Ég óska ykkur gleði og ánægju í sumar, kær kveðja Yrsa Hörn ÍSAT kennari við Oddeyrarskóla.

Pétur og úlfurinn flutt af yngsta stigi og forstigi

Pétur og úlfurinn.mp4

19. apríl 2024

Hér er myndband þar sem nemendur og kennari voru að æfa sig í áttunum og bjuggu til lítið skemmtilegt lag

Áttirnar í ÍSATlandi.mp4

Hér er smá fréttaskot frá Ísatlandi

Í Ísatlandi hafa verið unnin mjög skemmtileg verkefni. 

Sumir hafa unnið með Líkamann, aðrir með Ævintýrið um Rauðhettu. Þá hafa nemendur unnið með verkefnið Ég sjálfur, heimilið, fjölskyldan osfrv. 

Nú nýlega byrjuðu nokkrir nemendur að vinna út frá bókinni Gula sendibréfið en textinn úr henni er einmitt grunnurinn að byrjendalæsi í 3. og 4. bekk.

 Krakkarnir hafa verið áhugasamir og verkefnin bera þess svo sannarlega merki, bæði falleg og í þeim er mikill fróðleikur. 

Bestu kveðjur frá Ísatlandi, Yrsa Hörn og krakkarnir