Verkefnalýsing:
Mynd af draumi eða tilfinningu
Nemendur velja draum eða tilfinningu, til dæmis gleði, reiði, spennu eða ró. Þeir nota liti, form, línur og áferð til að túlka val sitt í mynd. Áhersla er lögð á frjálsa og skapandi myndgerð fremur en að teikna hluti eins og þeir birtast í raunveruleikanum.
Í upphafi ræða nemendur um hvernig litir, form og línur geta vakið ólíkar tilfinningar. Einnig skoða þeir listaverk eftir listamenn sem hafa sótt innblástur í drauma, ímyndunarafl eða tilfinningar.
Tónlist verður spiluð meðan á vinnunni stendur. Nemendur vinna tvær til þrjár stuttar myndir innan afmarkaðs tímaramma. Þannig fá þeir tækifæri til að prófa ólíkar hugmyndir, liti og aðferðir án þess að leggja áherslu á eina fullunna mynd.
Notaðir verða fljótandi vatnslitir og blek. Að verkefninu loknu fá nemendur tækifæri til að segja frá myndum sínum og þeim hugmyndum eða tilfinningum sem liggja að baki.