Verkefnalýsing:
Í þessu vali verður boðið upp á fjölbreyttar leiðir til að efla samvinnu, skemmtun og þrautseigju. Farið verður í ýmsa samvinnu- og þrautaleiki s.s. Breakout leiki, sem þjálfar rök- og lausnarhugsun nemenda, á sama tíma og þeir þjappa hópnum saman.
Eftir leikina verður boðið upp á stutta fræðslu og æfingar í núvitund t.d. í formi núvitundargöngu í náttúrunni og ýmissa styttri æfinga. Núvitund er einstaklega gagnleg til að minnka streitu, kvíða, draga úr reiði, auka jákvæðni, efla samkennd og er þannig öflugt verkfæri til að auka vellíðan.