ÞITT ER VALIÐ
Valgreinar í unglingadeild Hraunvallaskóla skólaárið 2026 – 2027
Valgreinar í unglingadeild Hraunvallaskóla skólaárið 2026 – 2027
Kæri nemandi,
Viðmiðunarstundaskrá menntamálaráðuneytisins gerir ráð fyrir að nemendur í
8. – 10. bekk séu alls 37 kennslustundir á viku í skólanum og að hluti þeirra eigi að vera valgreinar.
Hægt er að skoða hvert og eitt fag í listanum hér á síðunni efst til vinstri undir yfirlit.
Valgreinatímabilin eru þrjú:
1. tímabil: 3. september - 16. nóvember 2026
2. tímabil 19. nóvember 2026 - 4. febrúar 2027
3. tímabil 8. febrúar - 13. maí 2027
Í unglingadeild Hraunvallaskóla geta nemendur valið sér eitt af eftirfarandi:
allt að sex valgreinar yfir skólaárið, tvær á hverju valtímabili, eina á mánudögum og eina á fimmtudögum
heilsárs valgrein, þá er nemandi í sama valinu allan veturinn
utanskólaval þar sem nemandi getur óskað eftir undanþágu frá valgreinum, sjá nánari lýsingu þar um hér fyrir neðan
Lestu vel yfir lýsingarnar á valáföngunum áður en þú velur. Við hvetjum þig til að ráðfæra þig við foreldra/forráðamenn eða leita leiðsagnar hjá kennara eða námsráðgjafa skólans.
Námsmat er í öllum valgreinum. Gefið er lokið/ólokið fyrir valið en bókstafir fyrir hæfniviðmið.
Smellið hér til að velja valfög fyrir næsta skólaár.
Lokadagur til að skila vali er þriðjudagurinn 26. maí.
Hafi nemandi ekki skilað inn vali á tilsettum tíma verður nemanda úthlutað vali þar sem er laust pláss.
Valgrein getur fallið niður ef ekki verður næg þátttaka. Einnig eru fjöldatakmarkanir í flestum valgreinum. Fyrstur kemur, fyrstur fær.
Einnig er hægt að fara inn á valformið með því að skanna þennan QR-kóða
Skipulagt nám, íþrótta-, tómstundaiðkun, áfangar í framhaldsskóla eða þátttaka í atvinnulífi getur verið metið sem valgrein.
Nemendur sækja valgreinar í 160 mínútur á viku (2x80 mínútur) og þurfa að skila sama tíma í utanskólavali og staðfestingu þar um.
Foreldri/forsjáraðili þarf að fylla út rafræna undanþágubeiðni vegna utanskólavals. Hlekkur á rafræna beiðni er sendur í tölvupósti til foreldra/forsjáraðila gegnum netfög sem eru skráð á Mentor.
Undanþágubeiðni þarf að skila inn í síðasta lagi 26. maí.
Nánar um utanskólaval má lesa í 26. gr. laga um grunnskóla frá 2008 https://www.althingi.is/lagas/nuna/2008091.html
Valgrein utan skóla getur ekki komið í staðin fyrir kjarnagreinar í skóla. Til dæmis er ekki hægt að sleppa skólaíþróttum (íþróttir og sund) þrátt fyrir miklar íþróttaæfingar.
Vali og undanþágubeiðnum vegna utanskólavals á að skila í síðasta lagi þriðjudaginn 26. maí.
Ef nemandi hefur ekki skilað inn vali á tilsettum tíma, eða forsjaraðili sent beiðni um undanþágu frá vali, áskilur skólinn sér rétt til að setja nemendur í val þar sem er laust pláss. Hægt er að leita til Elmu námsráðgjafa eða Hörpu deildarstjóra með spurningar varðandi valið.
Með góðri kveðju og ósk um gott samstarf
Elma Vagnsdóttir - Námsráðgjafi
Guðbjörg Harpa Valdimarsdóttir - Deildastjóri unglingadeildar