Í Snæfellsbæ eru sjö vitar. Þetta eru Öndverðarnesviti, Skálasnagaviti, Malarrifsviti, Arnarstapaviti, Kirkjuhólsviti, Ólafsvíkurviti og Töskuviti. Nemendur skoðuðu Ólafsvíkurvita, teiknuðu upp vitana, lærðu hugtök og skrifuðu um þá.
Á leið að Ólafsvíkurvita.
Upplýsingaskilti um Ólafsvík skoðað.
Ólafsvíkurviti skoðaður.
Í Réttarskógi
Öndverðarnesviti er lágur, ferstrendur steinsteyptur viti á vestasta tanga Snæfellsness, Hann er um 6,5 m hár og með áttstrendu ljóshúsi og var byggður árið 1973.
Skálasnaga/Svörtuloft viti er steinsteyptur, ferstrendur viti á Skálasnaga við Svörtuloft. Vitinn var byggður árið 1930 en tekinn í notkun árið 1931. Hann er 12,8 m hár
Malarrifsviti er á Malarrifi utan Lóndranga á Snæfellsnesi. Eldri vitinn sem stóð á Malarrifi var soðinn saman úr járnplötum. Hann var reistur árið 1917 og var 20 m hár. Vitinn sem stendur þar í dag er steinsteyptur og 24,5 m hár. Hann var byggður árið 1946. Vitinn var rafvæddur árið 1957 með orku frá ljósavél.
Kirkjuhólsviti er siglingaviti. Hann hvítur steinsteyptur viti. Vitinn er 5,9 m hár. Hann var byggður árið 1952 og stendur á Kirkjuhóli í Staðarsveit á sunnanverðu Snæfellsness.
Arnarstapaviti er hvítur innsiglingarviti við höfnina á Arnarstapa. Hann er 3 metra hár með innbyggt ljóshús. Það er búið að skipta um lit á vitanum. Hann var svartur og hvítur en nú er hann hann alveg hvítur. Hann var byggður árið 1941.
Ólafsvíkurviti er innsiglingaviti. Hann er appelsínugulur og sexstrendur viti við Ólafsvík. Hann var byggður árið 1943 og er um 3 m hár.
Töskuviti er innsiglingarviti í eigu sveitarfélags. Vitinn er 15 metra hár og var byggður árið 1981. Hann er staðsettur við innsiglingu í höfnina.
Nemendur teiknuðu upp Malarrifsvita og unnu með orð sem tengjast vitum.
Nemendur settu vitana sem þeir teiknuðu inn á kort af Snæfellsnesi sem þeir höfðu áður teiknað.
Antonía Hvönn
Aþena Máney
Bergdís Ylfa
Dawid
Embla Rós
Eyvar
Harpa Karen
Heimir
Hjalti Rúnar
Irma Líf
Leifur Hans
Máni Berg
Rakel
Svavar Ágúst
Þórður Unnsteinn