Stekkjarinn er lítil tjörn í göngufæri frá Grunnskóla Snæfellsbæjar í Ólafsvík. Nemendur fóru þangað í vettvangsferð í september 2025. Við fengum yndislegt veður og gátum ekki verið heppnari hvað það varðar.
Markmið ferðarinnar var að kynnast lífríki í fersku vatni með sýnatökum og greiningum þeirra smáu lífvera sem nemendur fundu. Þeir kynntust því að "margt býr í vatninu" sem er okkur hulið.
Ferðin gekk mjög vel og nemendur nutu stundarinnar við leik og leit lífvera.
Ég fann vatnskött og ána!
Þau fundu mjög margar sprækar brunnklukkur.
Leitað í gróðrinum og botnleðjunni að lífverum.
Lífverunum sem fundust safnað saman í fötur og þá var hægt að telja fjölda þeirra.
Hitastig og sýrustig vatnsins var mælt.
Nemendur nýttu svæðið vel til að skoða nánar hvað þar leyndist.
Takk fyrir okkur.
Kveðja frá 5. bekk.