Staðarsveit
Átthagafræðiferð 7. bekkjar vorið 2026
árgangur 2013
Staðarsveit
Átthagafræðiferð 7. bekkjar vorið 2026
árgangur 2013
Í maí fór nemendur 7. bekkjar í vettvangsferð í Staðarsveit. Nemendur höfðu áður lesið og skrifað texta um þá staði sem heimsóttir voru, sjá hér fyrir neðan, og lásu textann upp á þeim stöðum sem farið var á. Nemendur á Lýsu fóru með í ferðina. Ferðin hófst á því að keyrt var frá Ólafsvík að Lýsudeild. Farið var að bænum Ölkeldu. Þar var uppsprettan skoðuð og nemendur fengu að smakka ölkelduvatn. Heimafólk á Ölkeldu tók á móti hópnum og bauð þeim að skoða fjósið. Næst var keyrt að Staðarstað þar sem kirkjan og minnismerki voru skoðuð. Þá var komið að því að fara í fjöruna á Ytri - Tungu þar sem nemendur skoðuðu seli. Nemendum var boðið í mat á Lýsuhóli auk þess að skella sér í sund í Lýsuhólslaug. Á heimleið var Bjarnarfoss skoðaður og nesti snætt.
Staðarsveit er á Vesturlandi og er mjög fallegur og rólegur staður á sunnanverðu Snæfellsnesi. Þar er mikill gróður og víða mýri með litlum vötnum sem fuglar halda til í. Í Staðarsveit eru fjölda vatna og varphólmar í flestum þeirra. Varphólmar eru litlar hólmar sem fuglar verpa í. Staðarstaður er kirkja í Staðarsveit. Kirkjan var reist árið 1942 og var kláruð 1945. Fyrir ofan Staðarsveit rís ölduhryggur og lengra í burtu sjást há fjöll með hvössum gnípum og tindum.
Mælifell er fjallshnúkur á Snæfellsnesi, upp af Búðum, og það er 566 m á hæð. Það hefur myndast við gos undir jökli. Fjallið skiptir um lit eftir því hversu mikil sól er því það er gert úr ljósgrýti sem heitir líparít.
Á Íslandi eru að minnsta kosti tólf fjöll sem bera nafnið Mælifell. Nafnið vísar oftast til þess að fellin eru keilulaga og auðþekkjanleg í landslaginu, gjarnan notað sem kennileiti.
Hér erum við mætt í rútuna og lögð af stað að sækja nemendur á Lýsuhóli.
Á þessari mynd erum við á Ölkeldu að smakka sérstaka vatnið þar.
Við fengum að skoða fjósið á Ölkeldu. Það var mjög gaman að sjá fullt af kúm og við fengum meira að segja að klappa sumum dýrunum.
Hér vorum við í kirkju sem heitir kirkjan á Staðarstað og eins og nafnið gefur til kynna er hún á Staðarstað.
Lýsuhyrna er tignarlegt fjall á sunnanverðu á Snæfellsnesi, vestan við Lýsudal. Það er samfelldur hluti af fjallshrygg svæðsins. Þar er flott og mikið útsýni. Á Lýsuhóli eru fjöll sem eru snarbrött og gerð úr djúpbergi. Lýsuhyrna stendur fyrir ofan Lýsuhól og hún er gerð úr gabbró og granófýr (granít). Það hafa tvö hraun myndast úr fjöllunum, það eru Hraunsmúlahraun og Bláfeldahraun. Í Staðarsveit standa tveir bæir sem draga nafn sitt af hraununum.
Ölkelda er vatn sem kemur upp úr jörðinni. Ölkelduvatn inniheldur mikið af koltvíoxíð. Í hverjum lítra af því eru um það bil 1,4 g af koltvíoxíði. Það er hægt koma við og smakka ölkelduvatn. Það er á bragðið eins og blóð eða járn en oft er það kallað sódavatn. Ölkeldur eru algengastar á Snæfellsnesi en það er samt hægt að finna þær annars staðar á landinu.
Staðarstaður er kirkjustaður í Staðarsveit. Þar hefur verið prestsetur frá fornu fari. Núverandi kirkja var reist á árunum 1942 - 1945. Í kirkjunni eru tveir koparstjakar frá árinu 1714. Altaristaflan í kirkjunni er eftir sænska listmálarann Lars Hofsjö sem málaði á kórvegginn árið 1982. Ari Fróði Þorgilsson sat á Staðarstað árin 1067-1148. Hann ritaði Íslendingabók sem er merkasta sagnfræðirit Íslendingasögunnar.
Ytri Tunga er strönd á sunnanverðu Snæfellsnesi. Ströndin er þekkt fyrir gullna sandinn og selina sem koma þar að. Selirnir sjást allt árið um kring. Þar er einnig útsýni yfir Faxaflóa. Ytri Tunga er rólegur og friðsæll staður sem margt heillandi er hægt að sjá t.d veðruð hvalabein sem minnir á tengingu við sjóinn.
Lýsuhóll er bær í Staðarsveit. Á árunum 1946 og 1963 var borað eftir vatni og enn er verið að bora eftir vatni, seinast árið 2010. Á svæðinu má finna tvær ölkeldu uppsprettur. Ein er kölluð Sigga eftir húsfreyju sem bjó á bænum og hún er minni og eldri. Heitt ölkelduvatn kemur upp úr jörðinni og vatnið í sundlauginni á Lýsuhóli er ölkelduvatn. Við hliðin á sundlauginni er skóli sem er hluti af Grunnskóla Snæfellsbæjar. Á Lýsuhóli er félagsheimili Staðarsveitar sem er samkomustaður fólksins í sveitinni.
Við fórum á fjöruna. Þar skoðuðum við seli og þar er hægt að finna fallega skeljar og steina.
Í skólanum hjá Lýsahóli var Dagbjört kennari að sýna okkur refil um söguna um Fróðarundrin. Eftir það fórum við að borða hádegismat.
Eftir mat fórum við í sund. Það var mjög skemmtilegt í sundinu því þetta var ekki venjuleg sundlaug. Við vorum í eina klukkustund í sundlauginni. Eftir sundlaugina fórum við með rútu upp að Bjarnafossi.
Í þessari mynd sitjum erum við hjá Bjarnarfossi. Við vorum þarna til að skoða fossinn og hann var mjög flottur og stór. Eftir það hlupu allir niður í rútuna og það var mjög gaman.
Bjarnarfoss er tignarlegur foss fyrir ofan bæinn Hraunhöfn í Staðarsveit. Fyrir ofan fossinn er Mælifell og við hann eru stuðlabergshamrar. Fossinn steypist fram af háum bergstalli. Bergstallur er þrep eða vik inn í vegg eða klett. Í brekkunum við fossinn er blómgresi, hvannir, burknar, blágresi og margar skrúðjurtir. Skammt þaðan vaxa sjaldgæfu blómategundirnar skógfjóla, sifjarsóley og hagastör.
Alan, Aron Eyjólfur, Bjarki Már, Daníel Berg, Egill Míó, Elisabeth Halldóra, Freyja Hafrún, Irma Júlía, Jakub, Jóhann, Kristófer, Leonie, Sölvi, Tumi Guðjón, Víglundur Orri