Samgöngur hafa breyst mikið í gegnum árin. í gamla daga fór fólk gangani eða ríðandi á hesum á milli stað og landshluta. Í dag ferðast fólk á bílum, með rútum og flugvélum. Við skoðuðum hvernig vegir og samgöngur voru í Snæfellsbæ. Fólk þurfti t.d að að fara fjöruna milli Ólafsvíkur og Hellissand þegar það var fjara. Ef það var flóð þá kosmt fólk ekki á bíl til Hellissands. Seinna kom vegur í Enninu og síðan var farið að setja varnargað í fjöruna við ennið og gera veginn sem við keyrum í dag. Flugvelli hafa verið á þremur stöðum í Snæfellsbæ, einn á Gufuskálum, einn á Dagvarðará og nýjasti flugvöllurinn á Rifi. Flugvöllurinn á Rifi er eini sem er notaður í dag, þó einungis fyrir sjúkraflug, allt áætlunarflug hætti árið 1994. Vegurinn yfir Fróðárheið tengi smana sunnanverðan og norðaverðan Snæfellsbæ, upp á heiðinni er sæluhús sem notað var í gamladaga þegar fólk lenti í hrakningum á heiðinni að vetrarlagi.
Fróðaheiðin er fjallvegur sem liggur yfir utanvert Snæfellsnes , tengi þannig Snæfellsbæ saman. Að norðan er farið upp á heiðina rétt innan við Bugsvatn svo kallað og komið niður rétt vestan við Bjarnarfoss að sunnanverðu, leiðin er 20 km. löng. Fróðarheiði þótti allbrött og erfið yfirferðar. Í gamla daga var heiðin ekki fær umferð fyrr en seint á vorin og lokaði snemma á haustin þegar að var kominn snjór. Á vorin ef enn var snjór á nokkrum stöðun var hún handmokuð. Hæsti punktur heiðarinnar eru svo kallaðar Rjúpnaborgir en þær eru í 361 metra yfir sjávarmáli.
Í fréttum frá árinu 1982 kemur farm að 300 manns voru samankomnir á Fróðárheiði sunnudaginn 15. mars þegar afhent var og tekin i notkun skíðalyfta. Voru það fjögur félagasamtök sem stóðu að þessu, það voru Lionsklúbbur Nesþinga, Kiwanisklúbburinn Korri í Ólafsvík, Lionsklúbbur Ólafsvíkur og Rotaryklúbbur Ólafsvíkur.
Vegurinn fyrir Búlandshöfða, eins og hann er í dag var opnaði á miðvikudegi 1. desember árið 1999 og var þá komið fult slitlaga á milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar. Fyrsta vegagerð um Búlandshöfða hófst á miðju sumri árið 1959 og tók sú vinna tvö ár. Vegurinn var so opnaður fyrir umferð árið 1961. Vegurinn er breiðastur í svo kallaðri Þrælaskriðu en á þeim stað er höfðinn hvað brattastur bæði fyrir ofan veginn og neðan hann. Vegurinn um Búlandshöfða tengir sama tvö byggðarlög, Grundarfjörð og Snæfellsbæ.
Fyrr á öldum lá mjó gata í hlð Búlandshöfða og það var þverhníf út í sjó. Þessi gata þótti mjög hættulega yfirferðar. Farið var um hættulega skriðu sem nefnd var Þrælaskriða og kemur hún við sögu í Eyrbyggju en þar segir að þrælar hafi hoppað fram af á flótta.
Rifsvöllur var nottaður í mörg ár og 23. maí árið 1998 lentu fjórar flugvélar á Rifsflugvelli og það er sagt að Rifsvöllur sé ágættur völlur því hann er öruggur með tvær brautir. Áætlunarflug á Rifsvöll lagðist niður árið 1994 og er völlurin er ekki mikkið nottaður í dag. Flugvöllurinn er aðalega notaður fyrir sjúkraflugvélar, þyrluflug og einkaflug.
Lendingarbrautin er malbikuð með olíumöl en brautin er 30 m á breidd og rúmir 1100 m á lengd. Við brautina stendur farþegaskýli og flugskýli en það eru engin leiðarljós meðfram brautinni.
Út við Gufuskála á svæði sem heitir Gufuskálamóða er gömul flugbraut sem var byrjað að nota árið 1945 og var þar áætlunarflug í áratug. Flugbrautin er bara í sandinum og hægt er að sjá móta fyrir henni. Flugvöllurinn var lagður niður þegar það var komið vegsamban um sunnarnverðam Snæfellsjökul, frá Hellissandi að sunnanverði Fróðárheiði.
Á sunnanverður Snæfellsnesi undir rótum Snæfellsjökuls í landi Dagverðaráar er gömul litil flugbraut sem er löngu hætt að nota og er hún að hverfa í gróði landslagi. Brautin er 500 m löng og 20 m breið.