Rjúkandavirkjun
Átthagafræði í Grunnskóla Snæfellsbæjar
Átthagafræði í Grunnskóla Snæfellsbæjar
Nú á vordögum fóru nemendur 7. bekkjar í vettvangsferð í stöðvarhús Rjúkandavirkjunar hér í Ólafsvík. Sigurður, starfsmaður Smiðjunnar Fönix, og Aron, starfsmaður Rarik, tók á móti nemendum. Þeir fræddu þá um það sem bar fyrir augu innan og utan húss. Nemendur fengu að skoða safn gamalla muna á efri hæð hússins, þeim var sýnt frá stíflumannvirkjunum sem eru ofan við Lambafell í gegnum tölvu. Þeim var einnig sýnt hvar vatnið kemur inn í húsið og hvernig það er nýtt til að framleiða rafmagn. Nemendur fengu einnig að skoða varaaflið sem er innan húss og í færanlegri rafstöð utan húss og voru nokkrar vélar gangsettar fyrir þau. Veðrið lék við okkur eins og svo oft áður og nemendur voru leystir út með léttum veitingum í lok ferðar. Við þökkum kærlega fyrir góðar móttökur.
Mælar sem tilheyrðu eldri vatnsvélinni hafa fengið að halda sér og áhugavert að sjá þá í samanburði við nýja tækni.
Gaman að skynja titringinn í pípunni þegar vatnið fer um hana á miklum hraða.
Ísköld og blaut pípan víbrar undan afli vatnsins.
Útskýrt hvernig stíflan sem er ofan við Rjúkanda (foss) uppi á Jökulhálsi virkar. Bæði hægt að sjá myndir af henni og fleiri tölulegar upplýsingar.
Hávaðinn í vélinni er þó nokkur og því var tilvalið að útskýra nokkur atriði áður en farið var inn í salinn.
Siggi útskýrir hvernig hægt er að fylgjast með rafmagnsframleiðslunni.
Aron útskýrir hvernig það virkar þegar vatnið kemur í það.
Fjórar stórar vélar í salnum.
Stýring á varaaflinu kynnt og það gangsett.