Árið 1843 brunnu öll verslunarhús Clausensverslunar í Ólafsvík. Kaupmaður lét þó ekki deigan síga og reisti ný verslunarhús. Af þeim húsum stendur einungis eitt hús eftir en það er Pakkhúsið sem reist var árið 1844.
Árið 1971 var húsið síðan friðað fyrst húsa á Íslandi. Þegar Ólafsvík fagnaði 300 ára verslunarafmæli árið 1987 var ráðist í fyrsta viðgerðaráfanga hússins. Árið 1997 var uppgerð á miðhæð hússins kláruð undir umsjón Jons Nordsteien arkitekts hússins og árið 1998 var sett upp ýning í húsinu sem stendur enn.
Myndin er af Snæfellsnesi hún er á korti af Snæfellsnesi og af Vestfjörðum frá fyrir hluta 19 aldar.
Sjómenn tóku svona áttavita með á sjó og þetta hjálpaði þeim að rata en í dag er tæknin mikið betri. Aldurinn er ekki þekktur.
Í gamla daga var svona viti settur á bryggjuna og hann blikkaði. Þegar sjómenn voru að koma að landi vissu þeir að það var bryggja ef það var myrkur.
Skilvinda er tæki til að aðgreina misþung efni með hröðum snúningi ( hin þyngstu leita lengst út vegna miðflóttaaflins) ,m.a. notað til að skilja að rjóma og unndanrennu. Uppfinningamaður skilvindunnar var hinn sænski hugvitsmaður Gustav de Laval. Fyrir tíma skildvindunnar var rjóminn aðskilinn mjólkinni í trogum úr tré. Rjóminn settist til efst í torginn og undanrennan var þá þar undir. Þá var hægt að fleyta rjómanum ofan af, eða láta undanrennuna renna undan rjómanum.
Tóbaksskurðarjárn var notað til að skera pressaðar klumpa af tóbaksblöðum í bita til að tyggja. Einnig var það þurrkað, mulið og tekið ĺ nefið. Tóbakið barst til Íslands á 17. öld og breyddist notkun þess hratt út, það var reykt í krítpípum og tekið í vörina og nefið.
Ístöð þjóna því hlutverki að gera reiðmanninn stöðugri í söðli en hann annars væri. Ístöð bárust frá Austurlöndum til Evrópu í kringum 200, 500.e Kr. og til Norðurlanda nálægt upphafi víkingaaldar í kringum árið 800 e.kr.
Eldavél í alþýðuhúsi í Ólafsvík
Borðið var notað til að borða við. Það er gleraugnahulstur, klemmur og kertastjaki sem er búið að liggja á borðinu yfir 100 ár hreyfingarlaust.
Þetta er mjólkubrúsi sem notaður var til að flytja mjólk
Eigandi Duusverslun í Reykjavik, keypt frá Noregi, ensk smíði, 89 lestir. Strandaði við Hvalsnes 10. október 1919 skipstjóri var Fiðrik Ólafsson (frægur aflamaður) mannbjörg varð. Sagan er í skútuöldinni 4. bindi bls. 27, 1977. Módelið er smíðað af fyrrverandi stýrismanni á Ásu (nafn óþekkt) hann dó á Vífilstöðum úr berklum ca 1910-1914
Hinrik í Merkisnesi Höfnum Suðurnesjum smíðaði módelið, gjöf frá Ragnari Kjartansyni myndhögvara
Byggðasafn er á miðhæð Pakkhússins, þar geta gestir upplifað íslenskt alþýðuheimili 19. aldar og skyggnst inn í atvinnu- og lifnaðarhætti sjómanna fyrr á öldum.
Aleksander, Arney Hrund, Breki Dan, Ellen, Emir, Hilmar Þór, Hinrik Freyr, Iga, Igor, Jón Arnar, Kristel Marín, Marín Lea, Natalía Hall, Óskar, Pétur, Úlfhildur og Þuríður Magnea.