Ólafsvíkurkirkja
Árgangur 2013 vor 2026
Árgangur 2013 vor 2026
Þann 19. nóvember árið 1967 var Ólafsvíkurkirkja vígð. Hákon Hertervig var arkitekt og Böðvar Bjarnason byggingarmeistari. Bæði þak og veggir kirkjunnar eru steinsteyptir. Grunnflötur kirkjunnar er gerður úr þríhyrningum, það eru tveir litlir í sitthvorum enda og einn stór í miðjunni. Turn kirkjunnar rís 30 metra upp til himins. Steindir gluggar voru settir upp árið 1976 og eru eftir Gerði Helgadóttur. Klukknaport var byggt síðar og árið 1990 voru klukkurnar færðar þangað. Í Ólafsvíkurkirkju eru gripir úr Fróðárkirkju t.d. predikunarstóll, skírnarskál úr silfri og altaristafla.
Aðrar kirkjur í Snæfellsbæ
Kirkjan á Hellnum
Búðakirkja
Ingjaldshólskirkja
Brimilsvallakirkja
Staðarstaðarkirkja
Við fengum grunnteikningar af kirkjunni og reiknuðum flatarmál og ummál hennar. Við reiknuðum líka hæð kirkjunnar, hæð klukkuturnsins, flatarmál anddyris, flatarmál skrúðhússins og grunnflatarmál kirkjunnar.
Gluggar kirkjunnar eru flestir þríhyrningslaga en nokkrir eru rétthyrningar og ferningar.
Handriðið á Ólafsvíkur kirkjunni var gjöf frá Lionsklúbbinum og myndar þríhyrninga.
Alan Zuk, Aron Eyólfur, Bjarki Már, Daníel Berg, Egill Míó, Elisabeth Halldóra, Freyja Hafrún, Irma Júlía, Jakub, Jóhann Mikael, Kristófer, Leonie, Sölvi, Tumi Guðjón, Víglundur Orri.