Skólinn hefur nú um nokkurt skeið útvegað nemendum öll námsgögn. Í heildina séð hefur það komið vel út og almenn ánægja með framtakið. Reynslan sýnir okkur hins vegar að umgengni um dagleg ritföng, s.s. blýanta, penna, strokleður og yddara er ábótavant þó við höfum ítrekað rætt við nemendur um mikilvægi góðrar umgengni og að bera virðingu fyrir eigum skólans. Á næsta skólaári breytum við þessu fyrirkomulagi og þurfa foreldrar að sjá til þess að nemendur mæti með pennaveski í skólann, búin þessum ritföngum, þ.e. með blýant, penna, strokleður og yddara.