Fróðárundrin eru þáttur í Eyrbyggjusögu. Atburðirnir gerast á bænum Fróðá á Snæfellsnes. Kennari las söguna Fróðárundrin fyrir nemendur. Sögunni var skipt í þrjá hluta og hver hópur vann með einn hluta sögunnar. Auk þess teiknuðu nokkrir nemendur myndir úr sögunni inn á ipad. Hér fyrir neðan má sjá myndbönd og samantektir úr sögunni, mynd af veggteppi (refli) sem Kvenfélag Staðarsveitar er að sauma út um atburði sögunnar og myndir af nemendum á söguslóðum.
Það er sumar og Þórgunna kemur til Íslands. Þuríður vill kaupa dýrgripina frá Þórgunnu en hún hefur ekkert að selja. Þórgunna dvelur hjá henni og hjálpar við vinnu á Fróðá. Það rigndi mikið um sumarið og svo komu margir þurrir dagar. Einn daginn kemur góður þurrkur og þá er logn og hvergi ský á himni. Allt í einu kom myrkur yfir bæinn og menn gát ekki séð neitt. Það rigndi svo mikið að allt heyið var blautt og það rigndi blóði en blóðið þornaði alls staðar nema þar sem Þórgunna stóð. Um kvöldið lagðist Þórgunna í rekkju og vildi ekkert borða af því hún var orðin veik.
Þórgunnur talar við Þórodd og biður hann um að lofa sér því að brenna rekkjutjöldin, gefa Þuríði skarlattsskikkju sína og að láta jarða sig í Skáholti. Eftir andlát Þórgunnu vill Þuríður ekki að fallegu rekkjutjöldin verði brennd og rífst þess vegna við Þórodd um hvað eigi að brenna og hvað ekki. Á endanum brennir Þóroddur ekki rekkjutjöldin. Nokkrum dögum seinna eru menn að borða við eldaskálann og taka eftir hálfu tungli á veggi skálans og heyra að það boði mannslát. Tveimur vikum seinna kom sauðamaður einn heim. Hann talaði við sjálfan sig og næsta dag var hann látinn. Eftir það urðu menn varir við reimleika.
Selshöfuð stóð upp úr jörðinni. Það var vinnukona sem sá þetta og reyndi að berja selinn aftur niður. Selshöfuðið fór svo hátt upp að það leið yfir hana. Síðar kom húskarl en það leið yfir hann svo ungur strákur sem hét Kjartan barði selinn með járnsleggju. Hann hélt áfram að berja hann þar til selurinn gekk niður úr gólfinu og lokaði fyrir. Eftir það fórst bátur undir Enninu og líkin fundust ekki. Það var boðið í erfðidrykkju þeirra sem voru í bátnum. Eftir síðasta fegðarboðann fór Kjartan til Snorra og spurði um ráð og Snorri sagði honum að brenna rúm og rekkjuklæði Þórgunnu og stefna þeim sem gengu aftur. Þegar var búið að því hætti allur draugagangur á Fróðá.
Þórgunna kemur að hausti til Rifs með skipi frá Dyflinni.
Þórgunna kemur með glæsilega gripi með sér sem voru afar sjaldgæfir á Íslandi.
Um nóttina heyrðist mikið hark í búrinu og þar var Þórgunna komin, alsnakin, og gaf hún mönnunum að borða eins mikið og þeir þurftu.
Alltaf heyrast dularfull hljóð frá skreiðarhlaða heimilisins og svo fer að vaxa rófa, lík sviðinni nautsrófu, úr hlaðanum.
Í ferð nemenda í Staðarsveit fengu þeir að sjá og heyra um refil sem Kvenfélag Staðarsveitar er að sauma út. Á reflinum er farið yfir sögu Fróðárundra. Það var virkilega fræðandi að sjá og rifja upp söguna sem áður hafði verið unnið með í skólanum.
Nemendur fundu þennan stein veltu fyrir sér hvort þetta væri legsteinn.
Nemendur gengu um svæðið og skoðuðu ummerki um kirkju og kirkjugarð á svæðinu.
Alan, Aron Eyjólfur, Bjarki Már, Daníel Berg, Egill Míó, Elisabeth Halldóra, Freyja Hafrún, Irma Júlía, Jakub, Jóhann Mikael, Kristófer, Leonie, Sölvi, Tumi Guðjón og Víglundur Orri
Hér má sjá myndir af nemendum á söguslóðum.