Vinnuaðferðir :
Prjón og hekl: Nemendur læra ýmist tengiputtaprjón, fingraprjón, nota prjónahring, eða prjóna á tvo sokkaprjóna garðaprjón, eða e.t.v. á hringprjón, eða læra grunn í hekli. Einnig fá þeir að prófa prjónavélar frá 4, 22 og 46 lykkja.
Aðalvinnuaðferðin í 4.bekk er s.s. prjón og hekl, en aðrar vinnuaðferðir mun kennari velja með nemanda, t.d. í valverkefnum. Valverkefni eru oftast upprifjun vinnuaðferða fyrri ára.
Kennsluaðferðir ofl.:
Helstu kennsluaðferðir í textílmennt eru verkleg- og sýnikennsla. Textílnmennt er kennd 2x í viku í 6 Lotum (lotuhóp með 3. bekk), í 3 hópum, í 80.mín, í 11 skipti.
Hrímfaxi 1. Lota 27. ágúst - 1. okt.
Gleipnir 2. Lota 2. okt. - 13. nóv.
Iðavöllur 6. Lota 9. apríl - 4. jún.
Verkefnin eru:
Unnin eru lítil einstaklings prjónaverkefni þar sem þau velja sitt garn og prjónastykki (prjónadýr, leikföng o.s.frv.), og ef til vill taka þau einnig þátt í samvinnuverkefni. Jafnframt ef áhugi er fyrir hendi er prjónaklúbbur stofnaður og huggulegheit tengd honum höfð í hávegum. Þega nemendur hafa náð smá tökum á vinnuaðferðunum eru þeir hvattir til að vinna heima.
Valverkefni: þegar tími og áhugi er fyrir hendi er rými fyrir auka- eða heimavinnu og þá er reynt að vinna út frá áhuga sem kviknar hjá nemendu
Prjónað á sokkaprjóna
Tengiputtaprjón
Prjónað úr fingrapjóni á prjónastól
Prjónað á prjónavél