Námskeiðið ADHD - nám, hegðun og líðan er hluti af Sumarsmiðjum 2020. Því er ætlað að efla þekkingu kennara á ADHD röskuninni og þeim áskorunum sem henni fylgja. Líðan barna er mikilvægur þáttur í öllu skólastarfi og tilfinningavandi getur haft afgerandi áhrif á námsframvindu. Fjallað er um kvíða og depurð og hvernig hægt er að draga úr neikvæðum áhrifum þeirra. Að auki er farið yfir hagnýtar leiðir í kennslu barna með ADHD og hvernig hægt er að auka getu þeirra til náms.
Það er ADHD samtökunum mikið gleðiefni að kennarar og starfsmenn skólasamfélagsins vilji kynna sér málefni fólks með ADHD. Á liðnum árum hefur orðið mikil vitundarvakning um eðli taugaþroskaröskunarinnar og sem betur fer eru fordómar og skömm vegna ADHD á undanhaldi. Kennarar og skólasamfélagið er í lykilhlutverki þegar kemur að því að tryggja börnum með ADHD gott og þroskavænlegt umhverfi á þeim tíma þegar þau eru sjálf að læra á röskunina, finna styrkleika sína og læra leiðir til að takast á við þær áskoranir sem ADHD veldur.
Í þeim fyrirlestrum sem boðið verður uppá verður gefin innsýn í eðli röskunarinnar, hvernig hún hefur áhrif á hegðun og nám og bent á fjölmargar leiðir til að koma til móts við börn með ADHD í skólastarfinu. Vegna COVID verða fyrirlestrarnir með öðru sniði en ætlað var og því óhægt um vik að svara mögulegum spurningum sem upp koma, en engu að síður ætti efnið að komast vel til skila.
ADHD samtökin benda einnig á ítarlegar upplýsingar á heimasíðu samtakanna www.adhd.is en þar má m.a. finna fyrirlestra um einstök álitaefni tengd ADHD, upplýsingar um fjölbreytt námskeið samtakanna, hlaðvarpsþætti, m.a. um reynslu fólks með ADHD af skólakerfinu og margt fleira. Þaðan má líka senda okkur póst með spurningum um tiltekin málefni ef tilefni er til.
Um leið og við þökkum öllum þeim sem hafa sýnt þessu mikilvæga málefni áhuga, lýsum við einlægum vilja okkar til að eiga gott samstarf í framhaldinu... og að námskeiðið nýtist sem best.
F.h. ADHD samtakanna
Hrannar Björn Arnarsson, framkvæmdastjóri.
Hrannar Arnarsson, framkvæmdarstjóri
Haukur Örvar Pálmason, sálfræðingur
Margrét Birna Þórarinsdóttir, sálfræðingur