Eftir þessa námseiningu átt þú að geta:
Útskýrt mismunandi birtingarmyndir orku sem þú þekkir í daglegu lífi
Útskýrt hvernig orka getur breytt um form en hverfur aldrei (varðveislu orkunnar)
Lýst tengslum hreyfiorku við hreyfingu hluta
Útskýrt hvernig þyngd og hraði hafa áhrif á hreyfiorku
Útskýrt hvernig staðsetning hluta tengist stöðuorku (t.d. hlutir hátt uppi)
Lýst orkubreytingum með hugtökum eins og "hraðara/hægar" og "heitara/kaldara"
Útskýrt einföld dæmi um hvernig heildarorka kerfis helst óbreytt þótt orkan breyti um form
Lýst hvernig orka flæðir milli hluta og breytist innan einfaldra kerfa
Athugið: Í 8. bekk leggjum við meiri áherslu á hugtakaskilning en flókinn útreikning, en þið munuð byrja að skoða einfalda útreikninga á hreyfiorku og stöðuorku.
Markmið: Kanna Hversdagshugmyndir og virkja fyrri þekkingu
Aðferð: Hugmyndakort, hópumræða eða spurningar eins og:
- „Hvað er orka?“
- „Hefur þú séð eitthvað hreyfast án þess að nokkuð ýti því?“
Verkefni: Nemendur teikna mynd af atburði þar sem orka kemur við sögu (t.d. barn á róló).
Markmið: Þekkja og skilgreina hugtökin stöðuorka og hreyfiorka
Aðferð: Kynning + einföld dæmi (t.d. hlutur á hillu og hlutur sem fellur)
Verkefni: Para saman lýsingar og myndir:
- „Hlutur á hillu“ → „Stöðuorka“
- „Hlutur sem rennur niður brekku“ → „Hreyfiorka“
Markmið: Geta greint stöðu- og hreyfiorku í mismunandi aðstæðum
Aðferð: Myndbönd, tilraunir (t.d. hleypa kúlu niður ramp)
Verkefni:
- Skrifa niður hvar orkan er stöðuorka og hreyfiorka
- Merkið inn á mynd á hvaða tímapunkti breytingin á sér stað
Markmið: Skilja hvernig orkan breytist úr stöðuorku í hreyfiorku og öfugt
Aðferð: Sýnidæmi, tilraunir og umræðuvinna
Verkefni:
- Teikna línurit yfir breytingu orku í rennibraut
- Útskýra orkubreytinguna í skriflegu svari
Markmið: Beita hugtakinu í nýju samhengi og tengja við aðra þekkingu
Aðferð: Opnar spurningar, skapandi verkefni
Verkefni:
- Hönnunarverkefni: „Gerðu tilraun eða hönnun sem sýnir bæði stöðuorku og hreyfiorku.“
- Skriflegt svar: „Af hverju breytist stöðuorka ekki öll í hreyfiorku í raunveruleikanum?“
- Myndasaga: Búðu til frásögn þar sem orka breytist.
Á þessu stigi getur nemandi beitt notkun orðins í víðara samhengi. Til dæmis þegar hann lærir um ljóstillífun, bruna, fæðukeðjur, orkugjafa og orkunotkun, jarðskjálfta o.s.frv. Einnig getur hann aðgreint hugtakið frá öðrum hugtökum eins og kraftur, afl o.s.frv.