Skólanámskrá er nánari útfærsla á því hvernig við í Klébergsskóla vinnum samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla og menntastefnu Reykjavíkur. Hér tilgreinum við þær leiðir sem við notum til að hlúa að, fræða og styrkja okkar nemendur til sjálfstæðis og þroska. Skólanámskránni er hægt að skipta í tvo megin þætti annars vegar almennt um skólastarfið í heild og hins vegar nánari útskýringar á námstilhögun hvers aldursstigs ásamt matsviðmiðum hvers árgangs.
Einkunnarorð Klébergsskóla eru Virðing, Samvinna og Metnaður og eru þetta leiðarljósin í öllu okkar starfi.
Í Aðalnámskrá grunnskóla kemur fram að:
Kennarar þurfa að hjálpa börnum og ungmennum til raunhæfs sjálfsmats, gera þeim grein fyrir markmiðum náms og hvernig miðar í átt að þeim. Leggja skal áherslu á leiðsagnarmat sem byggist á því að nemendur velti reglulega fyrir sér námi sínu með kennurum sínum til að nálgast eigin markmið í náminu og ákveða hvert skal stefna. Nemendum þarf að vera ljóst hvaða viðmið eru lögð til grundvallar í matinu.
Við í Klébergsskóla styðjumst við aðferðir leiðsagnarnáms til að stuðla að þessum þáttum ásamt því að stuðla að því að nemendur rækti með sér vaxandi hugarfar.
Hér fyrir neðan er hægt að skoða bækling, sem gerður var af Reykjavíkurborg, sem útskýrir helstu þætti leiðsagnarnáms .
Samkvæmt aðalnámskrá á að útskrifa nemendur 10. bekkjar með bókstaf í 10 greinum á 6 stiga skala sem er: D, C, C+, B, B+ og A. Einkununum A, B og C er lýst með texta fyrir hverja námsgrein í Aðalnámskrá. Í Klébergsskóla byrja nemendur í 8. bekk að safna sér inn fyrir lokaeinkunninni sinni í hæfnikort sem sýnilegt er í Mentor. Þannig geta nemendur og foreldrar fylgst vel með hver vegferð nemandans er og hvaða atriði þarf að styrkja til að ná tilsettri útskriftareinkunn.
Nemendur í 1 - 7 bekk fá einnig gefnar einkunnir í hæfnikort inn í Mentor. Þessum árum er skipt upp í þrjú námstímabil, 1. - 3. bekkur, 4. og 5. bekkur og síðan 6. - 7. bekkur. Hvert námstímabil styðst við hæfnikort fyrir sinn aldur í bóklegum fögum, þannig byrja nemendur í 1. bekk að safna sér inn í hæfnikort sem þeir eru með úr 3. bekk og nemendur í 4 bekk byrja svo á nýju korti sem þeir notast við út 5. bekk, svo framvegis.
Í íþróttum og list- og verkgreinum eru nemendur hins vegar að styðjast við eina námskrá/hæfnikort frá 1. - 4. bekk, 5. - 7. bekk og svo 8. - 10. bekk.
Þó svo að einkunnin sé eingöngu dregin í einn bókstaf við útskrift þá fá nemendur upplýsingar um heildarstöðu sína tvisvar á ári þar sem gefin er framvindueinkunn með hæfnikortinu. Framvindueinkunnin er gefin í rauðum, gulum eða grænum lit til að upplýsa um hver staðan sé í hæfnikorti hverrar námsgreinar fyrir sig. Ásamt framvindueinkunn gefa kennarar út viðmiðunarhæfnikort fyrir lok 1. - 9. bekkjar sem nemendur og foreldrar geta borið saman við hæfnikort nemandans til að átta sig enn betur á stöðunni.
Hér fyrir neðan má sjá nánari útskýringu á litum framvindueinkunnar:
Rautt: Með þessu áframhaldi á nemandi í hættu á að ná ekki lágmarkshæfni sem er C í lok námtímabils. Það er við lok 3. bekkjar, 5. bekkjar, 7. bekkjar og 10. bekkjar.
Gult: Nemandi er með hæga framvindu. Hann þarfnast meiri þjálfunar í einhverjum viðmiðum og ef hann er á unglingastigi þá er líklegt að með þessu áframhaldi sé nemandinn líklega ekki að ná B færni í lok námstímabilsins. Það er við lok 3. bekkjar, 5. bekkjar, 7. bekkjar og 10. bekkjar.
Grænt: Nemandi er með góða námsframvindu og með þessu áframhaldi er hann að ná B viðmiðum eða meira við lok námstímabilsins. Það er við lok 3. bekkjar, 5. bekkjar, 7. bekkjar og 10. bekkjar.