PALS lestrarbækur eru búnar til af Sólveigu Eddu Ingvarsdóttur verkefnastjóra læsis við skólans.
Tilgangur þeirra er að fylgja eftir K-PALS og G-PALS kennslustundum og tryggja að nemendur fái heimalestursefni við hæfi. Þannig eru til tvær K-PALS bækur sem fylgja hverju hljóði sem verið er að leggja inn, önnur gerðin merkt "a" er léttari, hugsuð fyrir þá nemendur sem þurfa meiri endurtekningu.
G-PALS bækurnar fylgja kennslustundunum en í þeim er enn meiri endurtekning í sögunum til að auka þjálfun nemenda.