Læsis fimman er skipulag yfir kennsluhætti og aðferðir í læsi og íslensku. Hún byggist á lýðræðislegu umhverfi þar sem nemendur velja sjálfir verkefni, hvar þeir eru og hvernig þeir vinna verkefnin. Þá er mikil áhersla lögð á sjálfstæði og sjálfsaga nemenda. Mælt er með því að skólar og einstaklingar dýpki þekkingu sína með því að lesa bókina
The Daily 5 : Fostering Literacy Independence in the Elementary Grades eftir
Gail Boushey og
Joan Moser.