Bókmenntir og STEAM
Þróunarverkefni unnið í samstarfi Selásskóla í Reykjavík og Brekkubæjarskóla á Akranesi
Þróunarverkefni unnið í samstarfi Selásskóla í Reykjavík og Brekkubæjarskóla á Akranesi
Þessi síða heldur utan um þróunarverkefnið Lestur, bókmenntir og STEAM sem unnið er í samstarfi Selásskóla og Brekkubæjarskóla.
Markmið með verkefninu er að:
Styrkja atbeini nemenda í lestrarnámi og auka þar með árangur þeirra og áhuga á lestri.
Tengja lestrarnám nemenda við umhverfi þeirra, bæði í gegnum hlustun og lestur bókmennta og verklega úrvinnslu.
Auka lestrarhæfni nemenda með því að vinna á áhugaverðan, verklegan og skapandi hátt með bókmenntir.
Kveikja lestrargleði með skemmtilegum og skapandi vinnubrögðum í kringum bókmenntir.
Efla félagsfærni nemenda með því að vinna í litlum hópum að þrautalausnum, hönnun og byggingu.
Vinna stöðugt að sjálfseflingu hvers og eins nemanda með því að auka lestrarhæfni í gegnum fjölbreytta vinnu þar sem ekki þarf að óttast mistök.
Þessi vefsíða er hluti af afrakstri verkefnisins. Hún heldur utan um þau verkefni sem verða til og er til notkunar fyrir alla án endurgjalds.