Á þessari síðu má finna aðgengilegt námsefni úr lotum á ýmsum námsstigum ásamt matsrömmum.
Í Gerðaskóla er unnið með samþættingu námsgreina á öllum stigum en áherslur eru mismunandi á hverju stigi. Á unglingastigi er samþættingarverkefnið Bræðingur hluti af stundaskrá en þar eru samþættar námsgreinarnar samfélagsfræði, náttúrufræði, íslenska, upplýsingatækni og list og verkgreinar. Alls eru kenndar tíu kennslustundir á viku í Bræðingi. Áhersla er lögð á ábyrgð nemenda á eigin námi, sjálfstæð vinnubrögð, skapandi skil og hæfnimiðað nám.
Á mið- og yngsta stigi eru samþættingarverkefnin Bragðarefur í 6. og 7. bekk, Snillitímar í 4. og 5. bekk og Hringekja í 1. - 3. bekk hluti af stundaskrá. Þar eru samþættar námsgreinarnar samfélagsfræði, náttúrufræði og list og verkgreinar. Áhersla er lögð skapandi skil, sjálfstæði vinnubrögð og leiðsagnarnám.
Í öllum samþættingarverkefnum Gerðaskóla er unnið í lotum sem í flestum tilfellum eru þematengdar. Kennarar vinna saman í teymi að hugmyndavinnu, undirbúningi, framkvæmd og námsmati.