Menntabúðir í Dalvíkurskóla
Menntabúðirnar verða haldnar í Dalvíkurskóla þriðjudaginn 10. febrúar 2026. Menntabúðirnar eru í samstarfi við Dalvíkurskóla, Oddeyrarskóla og Grunnskóla Fjallabyggðar.
Viðfangsefni menntabúðanna eru margvísleg. Dagskráin mótast fram að menntabúðum og tekur mið af því sem við öll leggjum fram. Hægt er að bjóðast til að miðla af reynslu og einnig að óska eftir viðfangsefnum.
16:15 - 16:30 Móttaka í sal
16:30 - 17:15 Fyrri lota menntabúðanna
17:15 - 17:45 Kaffi
17:45 - 18:30 Seinni lota menntabúða
Skráning er mikilvæg hvað varðar veitingar og einnig fyrir skýrslugerð.